Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. ágúst 2026 10:30 Það er ekki á hverjum degi sem heldri borgarar sitja við slíkt veisluborð heldur er myndin úr safni. Vísir/Lýður Meirihluti velferðarráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 13. ágúst síðastliðinn gjaldskrárhækkun á heimsendum mat og mat sem afgreiddur er í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum.
Verð fyrir lífeyrisþega var áður ýmist 1.100 eða 1.190 krónur en verður eftir breytingar 1900 krónur fyrir hverja máltíð. Breytingin tekur gildi 1. september næstkomandi. Almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækkar úr 1.915 krónum í 2.387 krónur Breytingin var samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins greiddu atkvæði gegn tillögunni á meðan fulltrúi Miðflokksins sat hjá. Í bókun meirihlutans segir að meirihluti velferðarráðs styðji þær breytingar sem lagðar eru til á rekstri matarþjónustu velferðarsviðs. Matarþjónusta sé mikilvægur hluti þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk en rekstur framleiðslueldhússins á Vitatorgi hafi um árabil verið þungur og farið fram úr fjárheimildum sökum þess að núverandi gjaldskrá hafi verið langt undir kostnaðarverði. Listería leiddi til útvistunar Greint var frá því í febrúar síðastliðnum að framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefði verið lokað eftir að bakterían sem veldur listeríu fannst við reglubundið eftirlit. Síðar sama mánuð var greint frá því að framleiðslu máltíðanna hefði verið útvistað en samningurinn hljóðaði upp á allt að þúsund máltíðir á dag. Þáverandi meirihluti velferðarráðs samþykkti var að gengið yrði í endurbætur á eldhúsinu en nú er útlit fyrir að svo verði ekki. Í bókun núverandi meirihluta kemur fram að ekki þyki forsvaranlegt að eyða að lágmarki fimm hundruð milljónum króna í endurbætur á eldhúsinu þegar unnt er að tryggja þjónustuna með öðrum hætti. „Með áframhaldandi kaupum á máltíðum frá sérhæfðum aðila og útboði á dreifingu þeirra er stefnt að öruggari, skilvirkari og hagkvæmari þjónustu,“ segir í bókuninni.
Reykjavík Heilbrigðiseftirlit Matur Eldri borgarar Borgarstjórn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira