Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar 17. ágúst 2026 17:01 Evrópuumræðan sem stendur yfir er mis málefnaleg. Mér sýnist að lesendur hafi lítið gagn af pistlum frá hörðum stuðningsmönnum og andstæðingum. Fyrir þá sem ekki hafa múlbundið sig í harðri og einstrengingslegri afstöðu má nefna níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Það fyrsta er að um yrði að ræða alvöru aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið, ekki könnunarviðræður eins og oft er gefið í skyn. Af hálfu Evrópusambandsins væri gengið til slíkra viðræðna í fullri alvöru rétt eins og í aðildarviðræðum þeirra þjóða sem áður hafa sótt um inngöngu í ríkjasambandið. Annað er að þetta væru ekki viðræður þar sem báðir aðilar legðu fram kröfur og skilyrði og svo væri mæst á einhverri „miðri leið“. Samningsaðilar eru að þessu leyti ekki jafnstæðir. Fulltrúar Evrópusambandsins mæta til allra viðræðna af þessu tagi á grundvelli sáttmála sambandsins, það er Rómarsáttmálans (1957), Maastricht sáttmálans (1993) og Lissabonsáttmálans (2009). Sáttmálum verður ekki breytt við samningaborð í aðildarviðræðum einstakra þjóða. Það er því ekki vel gert að gefa það út að um „allt megi semja“ þegar gengið er til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Það þriðja er að lýðræðishalli einkennir skipulag Evrópusambandsins eins og vel er þekkt. Hann felst í fjarlægð ákvarðana sambandsins frá almenningi (kjósendum) og því að margs konar ákvarðanir eru sambands- og ríkisdrifnar fremur en kjósendadrifnar. Þetta veldur því að skortur hefur verið á lýðræðislegu umboði og aðhaldi á vettvangi sambandsins. Til að bregðast að einhverju leyti við þessu fólst í Lissabonsáttmálanum meðal annars sú breyting að dregið var úr völdum smærri aðildarríkja og öll ríkin þurfa ekki lengur að vera sammmála í ákvörðunum sem samþykktar eru innan Leiðtogaráðs sambandsins. Hið fjórða er að efnahagslegur ávinningur af inngöngu í Evrópusambandið ræðst af því hver efnahagur ríkis er fyrir inngöngu, hve mikið ríkið skiptir við önnur Evrópusambandsríki, og hvort ríkið stendur utan EES eður ei. Mestur efnahagslegur ávinningur getur orðið fyrir ríki sem hefur bágan efnahag og myndi greiða lág aðildargjöld til sambandsins, stendur utan EES samstarfsins, en á mikil skipti við þjóðir innan Evrópusambandsins. Þetta hefur áhrif á stöðuna gagnvart Íslandi. Efnahagslegur ávinningur Íslands af inngöngu í sambandið er takmarkaður vegna þess að Ísland er eitt allra ríkasta land Evrópu og er þegar í EES samstarfinu á innri markaðnum með þjóðum sambandsins, en þyrfti efnahagsins vegna að greiða há aðildargjöld við inngöngu í sambandið. Hið fimmta er að ekki er samið um upptöku Evru í aðildarsamningum við Evrópusambandið. Íslenskt hagkerfi er fremur einsleitt, auðlindadrifið og all sveiflukennt. Efnahagslegur stöðugleiki gæti mögulega fengist á Íslandi með upptöku Evru (ef öllum skilyrðum yrði fullnægt einhvern tíma síðar). Á móti kemur að það drægi verulega úr sveigjanleika í hagstjórninni. Ýmsir þjóðhagfræðingar hafa bent á að upptaka gjaldmiðils sem miðast við stærri og annars konar markaðsaðstæður sé áhættusöm í litlu, fremur einsleitu og annars konar hagkerfi. Ein afleiðingin tengist lengri köflum atvinnuleysis. Hið sjötta er að verð á húsnæði og neysluvörum tengist launastigi. Meðaltekjur á Íslandi eru meðal þeirra hæstu í Evrópu. Ekki dugar að bera saman verð á pítsum milli landa með ólíkar meðaltekjur. Ekki heldur verð á húsnæði eða lánum. Hér er líka mikilvægt að hafa í huga að þeir sem fá lán til húsnæðiskaupa nota það til eignamyndunar og fjárfestingar sem er einhver sú besta sem völ er á hérlendis. Ýmis dæmi eru um það í Evrópu að fólk fái húsnæðislán á lægri vöxtum en á Íslandi og kaupi eða kaupleigi íbúðir, en eignahlutur þeirra breytist lítið, standi í stað eða jafnvel rýrni. Það sem er fremur einkennandi fyrir Ísland er þetta háa hlutfall eignamyndunar almennings í eigin húsnæði. Það háa hlutfall er síðan hægt að nýta til veðsetningar vegna annarar lántöku eða til eignasölu. Hið sjöunda og ekki sísta er það að með inngöngu væri dregið úr fullveldi Íslands. Þetta viðurkenna allir, en þeir sem vilja inngöngu í Evrópusambandið nota orðalagið „að deila fullveldinu með öðrum“. Þessu tengjast margir þættir. Íslendingar færu til dæmis undir sameiginlega sjávarútveigsstefnu og sameiginlega landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Ísland færi í ríkari mæli undir orkustefnu sambandsins, en Ísland er auðugt af endurnýjanlegri orku og er með eina ódýrustu raforku í Evrópu. Orkustefna sambandsins snýst í bili fyrst og fremst um hvernig raforka er flutt, af hverjum, til hverra og á hvaða kjörum, en þau áhrif ykjust til dæmis ef rafstrengur yrði gerður frá Íslandi til Bretlandseyja sem myndi hafa áhrif á raforkuverð á Íslandi. Viðskiptasamningar Íslands við ríki utan Evrópusambandsins féllu einnig niður og yrðu (ef af þeim yrði á annað borð) á vegum sambandsins. Þetta skiptir Ísland máli sem alþjóðlega viðskiptadrifið hagkerfi sem leitað hefur eftir viðskiptum innan og utan Evrópu, þó Evrópuviðskiptin séu fyrirferðarmest. Lagalega færi svo Ísland undir Evrópudómstólinn, sem felldi ekki ráðgefandi heldur bindandi úrskurði gagnvart aðildarríkjunum varðandi sáttmála og reglur sambandsins. Í áttunda lagi, að öllu þessu sögðu, er það nánast samdóma álit sérfræðinga í stjórnskipunarrétti að breyta þyrfti stjórnarskrá Íslands ef landið ætti að ganga í Evrópusambandið. Því veldur fullveldisafsalið. Til að breyta stjórnarskránni þyrfti samþykki tveggja þinga alþingis. Skýr krafa hefur verið um það síðustu áratugi að leita ætti jafnframt samþykkis þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu, sé það á annað borð vilji alþingis að breyta stjórnarskránni. Í níunda lagi er rétt að hafa í huga að innganga í Evrópusambandið, þótt snúin sé, er einfaldara ferli en útganga, sér í lagi fyrir smáþjóð. Langdregið og þyrnum stráð útgönguferli Breta er dæmi til íhugunar hér og þó eru Bretar stórþjóð með öfluga og reynslumikla stjórnsýslu. Þeir sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið mættu skýra betur af hverju þeir telja að það sé landinu nauðsynlegt. Ástæðurnar eru ekki nægilega ljósar, tilefnið óskýrt. Varla er það af hernaðarástæðum, enda er Ísland í Nató með varnarsamning við Bandaríkin og Evrópusambandið ekki hernaðarbandalag. Varla er það af efnahagsástæðum, enda Ísland þegar í EES og þar með á evrópska efnahagssvæðinu, auk þess að geta gert viðskiptasamninga við lönd utan sambandsins. Og varla er það vegna þess að erlendir stjórnmála- eða embættismenn hafi betri skilning á íslenskum aðstæðum og hagsmunum en Íslendingar sjálfir. Þetta má vera til umhugsunarvert í ljósi þess að atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið er ekki svo lítið mál. Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun