Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 15:17 Naomi Eto var vel fagnað eftir glæsimark sitt í úrslitaleiknum gegn Malaví. CAF Kamerún varð í gær fjórða þjóðin í sögunni til að vinna Afríkumeistaratitilinn í fótbolta kvenna. Það sem gerir sigur liðsins enn merkilegri er að Kamerúnum hafði mistekist að komast í gegnum undankeppnina fyrir mótið.
Kamerún vann 3-0 sigur gegn Malaví í úrslitaleiknum í gær, marokkósku höfuðborginni Rabat. Marie Ngah Manga skoraði fyrsta markið með skalla og Naomi Eto bætti við marki með glæsilegu skoti eftir hálftíma leik. Eto lagði svo upp þriðja markið, sem Ngah Manga skoraði, rétt áður en flatuað var til hálfleiks. Stjörnusysturnar Tabitha og Temwa Chawinga, sem spila með Lyon og Kansas City Current, höfðu náð að koma Malaví afar óvænt í úrslitaleikinn en náðu ekki að finna svörin gegn Kamerúnum. Þær fögnuðu þó silfurverðlaunum sem verður að teljast ansi gott hjá lægst skráða liði mótsins en Malaví er aðeins í 153. sæti síðasta heimslista FIFA. Kamerún hafði þrisvar áður komist í úrslitaleik Afríkumótsins en alltaf tapað. Liðið átti þó upphaflega ekki að vera með á mótinu í ár en komst inn þegar ákveðið var að stækka mótið úr 12 liða móti í 16 liða mót. Kamerún, Egyptaland, Fílabeinsströndin og Malí komust þannig inn sem fjögur efstu liðin á heimslista sem ekki höfðu komist á mótið í gegnum undankeppnina. Kamerún og Malaví eru svo komin með öruggt sæti á HM í Brasilíu á næsta ári, líkt og Alsír og Marokkó sem einnig komust í undanúrslitin á Afríkumótinu. „Við erum mjög glaðar,“ sagði Ngah Manga í sjónvarpsviðtali eftir úrslitaleikinn. „Við höfum lagt svo hart að okkur í gegnum árin til að ná þessu. Það fyllir okkur miklu stolti að verða meistarar.“ Eins og fyrr segir er Kamerún nú fjórða þjóðin til þess að verða Afríkumeistari. Suður-Afríka vann mótið í fyrsta sinn árið 2022 og Miðbaugs-Gínea hefur unnið tvisvar en Nígería er í algjörum sérflokki með tíu titla, þann fyrsta árið 1998 og síðast 2024. Mótið er haldið á tveggja ára fresti.
Afríkukeppnin í fótbolta Kamerún Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Sjá meira