Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar 16. ágúst 2026 09:45 Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Spurningin sem Alþingi samþykkti hljóðar svo: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Því er gjarnan haldið fram að hér sé aðeins verið að „kíkja í pakkann“. Viðræðurnar séu nánast áhættulaus upplýsingaöflun og þjóðin geti einfaldlega sagt nei síðar ef niðurstaðan reynist óhagstæð. Þetta er villandi framsetning. Aðildarviðræður eru hvorki ókeypis né hlutlaus könnunarferð. Þær eru umfangsmikið pólitískt og stjórnsýslulegt verkefni sem beinist að einu markmiði: að undirbúa fulla aðild Íslands að Evrópusambandinu. Meirihlutinn vill ekki aðild Nýjasta könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið, sem birt var í júní, sýnir að 54% þeirra sem tóku afstöðu eru andvíg sjálfri aðild Íslands að Evrópusambandinu en 46% fylgjandi. Af öllum svarendum voru 47% andvíg, 39% fylgjandi og 13% tóku ekki afstöðu. Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst vissulega um að hefja viðræður að nýju, ekki um endanlega aðild. En þjóðinni er engu að síður boðið að hefja ferli sem hefur fulla aðild að lokamarkmiði. Sama mynd birtist á Alþingi. Þeir flokkar sem hafa aðild að ESB á stefnuskrá sinni, Samfylkingin og Viðreisn, hafa saman 26 þingmenn af 63. Aðeins 26 af 63 þingmönnum tilheyra því flokkum sem gengu til kosninga með aðild að ESB á stefnuskrá. Ekki liggur fyrir skýrt þingræðislegt umboð til að stefna að aðild. Flokkur fólksins, þriðji stjórnarflokkurinn, hefur aðild ekki á stefnuskrá sinni. Ríkisstjórnin sjálf er því ekki einhuga um áfangastaðinn. Afstaða stórra hagsmunasamtaka gefur sömu vísbendingu. Meirihluti félagsmanna Samtaka atvinnulífsins hefur lýst sig andvígan aðild, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa varað eindregið við sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB og formaður Bændasamtakanna hefur sagt að aðild hefði verulega neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda. Þrátt fyrir þetta er lagt til að íslenska ríkið setji verulegan tíma, fjármuni og pólitískt bolmagn í aðildarferli sem nýtur ekki skýrs meirihlutastuðnings meðal þjóðarinnar. Viðræður hafa raunverulegan kostnað Aðildarviðræður myndu kalla á margra ára vinnu ráðuneyta, Alþingis, eftirlitsstofnana og atvinnulífs. Sú vinna yrði ekki unnin í tómarúmi. Hún tæki tíma frá öðrum verkefnum: hagsmunagæslu innan EES, tvíhliða samskiptum, uppbyggingu útflutningsmarkaða og þróun sjálfstæðrar viðskiptastefnu, ásamt því að draga athygli frá brýnum verkefnum heima fyrir. Ísland hefur þegar fríverslunarsamning við Kína og er aðili að mikilvægum viðskipta- og samstarfssamningi EFTA-ríkjanna við Indland. Við aðild að ESB þyrfti Ísland að yfirgefa sjálfstæða viðskiptasamninga sína og taka upp sameiginlega viðskiptastefnu sambandsins. Við það eitt að viðræður hæfust féllu þessir samningar ekki úr gildi og Ísland héldi formlega rétti sínum til sjálfstæðrar samningagerðar þar til að aðild kæmi. Stjórnsýslulegur fórnarkostnaður væri engu að síður raunverulegur: takmarkaður mannafli utanríkisþjónustunnar beindist í auknum mæli að Brussel, á sama tíma og fyrirsjáanlegt væri að við fulla aðild hyrfu sjálfstæðir viðskiptasamningar Íslands inn í sameiginlega viðskiptastefnu ESB. Þetta er raunverulegur fórnarkostnaður sem verður að meta áður en lagt er af stað. Þungt regluverk Evrópu Ég stofnaði lækningatækjafyrirtæki árið 2017 og þekki af eigin raun reglugerðarumhverfi ESB. Að koma lækningatæki á markað í Evrópu er flókin, kostnaðarsöm og seinvirk vegferð sem gerir smærri nýsköpunarfyrirtækjum sérstaklega erfitt fyrir. Þetta er ekki aðeins mín reynsla. Samkvæmt könnun MedTech Europe frá 2025 hefur þeim lækningatækjafyrirtækjum fækkað verulega sem velja Evrópu sem fyrsta markað eftir gildistöku MDR-reglugerðarinnar: hlutfallið lækkaði um 33% meðal stórra framleiðenda og 19% meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Sífellt fleiri horfa fyrst til Bandaríkjanna, þar sem FDA er strangur eftirlitsaðili en ferlið að mörgu leyti miðstýrðara og fyrirsjáanlegra. Afleiðingin er að evrópskir sjúklingar geta þurft að bíða lengur eftir nýjustu tækni. Svissneska leiðin Sviss stendur utan EES og hefur því svigrúm sem Ísland hefur ekki. Svissneska þingið samþykkti árið 2022 tillögu um að opna svissneska markaðinn fyrir lækningatækjum sem hlotið hafa leyfi hjá traustum eftirlitskerfum utan Evrópu, einkum FDA. Í sérfræðiskýrslu sem Johner Institut vann fyrir Swiss Medtech voru bandaríska og evrópska kerfið borin ítarlega saman. Niðurstaða kerfissamanburðarins var að FDA-heimiluð tæki væru almennt að minnsta kosti jafn örugg og CE-merkt lækningatæki og að þróun, framleiðsla og eftirlit í kerfunum tveimur stæðust sambærilega háar kröfur, þótt meta yrði einstök tæki sérstaklega. Hinn 30. apríl 2025 ákvað svissneska ríkisstjórnin að vinna áfram að útfærslu verkefnisins. Markmiðið er bæði að tryggja öryggi sjúklinga og koma í veg fyrir að Sviss verði af nýrri lækningatækni vegna tregðu evrópska kerfisins. Ísland getur ekki farið þessa leið óbreytta, því MDR gildir hér í krafti EES-samningsins. Það undirstrikar einmitt vandann. Regluverkið er þegar íþyngjandi án aðildar, og því fastar sem við bindumst sambandinu því færri verða valkostirnir þegar kerfið reynist okkur illa. Góð samvinna án aðildar Ísland er nú þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og þátttakandi í Schengen. Við eigum náið samstarf við Evrópuríkin en höldum sjálfstæði í sjávarútvegi, landbúnaði, gjaldmiðlamálum og gerð viðskiptasamninga. Evrópusamvinna og ESB-aðild eru því ekki það sama. Valið stendur ekki milli einangrunar og Evrópu. Það stendur milli tveggja ólíkra leiða til samstarfs við Evrópu. Aðildarsinnar eiga fullan rétt á að halda fram kostum ESB. En þá verður líka að vera skýrt að aðildarviðræður eru kostnaðarsamt umbreytingarferli, ekki hlutlaus skoðunarferð. Lokamarkmið þeirra er að Ísland taki upp sameiginlega sjávarútvegs-, landbúnaðar- og viðskiptastefnu Evrópusambandsins og skuldbindi sig að meginreglu til að taka upp evruna þegar skilyrði þess eru uppfyllt, nema varanleg undanþága fengist. Síðasta inngönguríkið í ESB, Króatía, fékk fyrst og fremst tímabundnar aðlaganir en ekki varanlegar undanþágur frá sameiginlegu stefnunum, og litlar líkur eru á slíku nú. Rétt er að taka alvarlega tvö sterkustu rök aðildarsinna: óvissuna í alþjóðamálum og hærri vexti og verðbólgu hér en í nágrannalöndunum. Hvort tveggja er raunverulegt áhyggjuefni. En varnir Íslands hvíla á NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin, ekki á Evrópusambandinu, og vaxtastigið ræðst fyrst og fremst af okkar eigin hagstjórn. Þegar meirihluti þeirra landsmanna sem taka afstöðu vill ekki aðild, aðeins 26 þingmenn af 63 tilheyra flokkum sem hafa aðild á stefnuskrá og lykilsamtök atvinnulífsins, sjávarútvegs og landbúnaðar vara við henni, er eðlilegt að spyrja: er betur heima setið en af stað farið? Þegar ég segi nei í ágúst segi ég um leið já. Já við öflugu samstarfi við Evrópu og önnur lönd heims. Og já við fullvalda Íslandi sem semur sjálft um sína hagsmuni, hvort sem er í orkumálum, nýsköpun eða sjávarútvegi. Höfundur er læknir og stofnandi Freyja Healthcare. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar