Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 15:17 Er fullveldi aðeins að standa utan við – eða líka að geta haft áhrif? Það er stutt í 29. ágúst. Mörg okkar eru líklega þegar búin að mynda sér skoðun. En þetta mál er of stórt til þess að við hættum að spyrja spurninga. Hugsum því saman í nokkrar mínútur – ekki um flokka, já-lið eða nei-lið, heldur um Ísland eftir 20, 30 og 50 ár. Við Íslendingar erum stolt af sjálfstæði okkar. Það eigum við að vera. En hvað þýðir raunverulegt fullveldi fyrir litla þjóð árið 2026? Er það fyrst og fremst að standa utan við samstarf og ráða öllu sjálf? Eða getur fullveldi líka falist í því að velja samstarf, deila ákveðnum ákvörðunum með vinaþjóðum og fá í staðinn áhrif, öryggi og tækifæri? Við höfum áður þurft að svara svipuðum spurningum. Aðild að NATO var umdeild. EES-samningurinn var umdeildur. Varnaðarorðin um fullveldið voru sterk. Í dag er NATO ein af meginstoðum öryggis Íslands og EES-samningurinn hefur í meira en þrjá áratugi tengt íslenskt atvinnulíf við innri markað Evrópu. Samstarfið tók ekki sjálfstæði okkar. Við völdum það vegna hagsmuna Íslands. Heimurinn hefur gjörbreyst síðan við gerðum EES samninginn 1994. Stríð geisar í Evrópu. Samskipti stórveldanna eru ófyrirsjáanlegri. Gervigreind og tæknibylting breyta atvinnulífinu. Evrópuríkin ræða aukið samstarf um öryggi, orku, tækni og samkeppnishæfni. Er EES-samningurinn, sem hefur þjónað okkur vel, endilega besta mögulega staða Íslands næstu 30–50 árin? Það vitum við ekki - einmitt þess vegna eigum við að kanna það. Í gegnum EES tökum við nú þegar upp stóran hluta regluverks innri markaðarins. Við getum haft áhrif á undirbúning þess, en höfum ekki sömu stöðu og aðildarríkin þegar pólitískar ákvarðanir eru teknar. Hugsum saman: Er meira fullveldi fólgið í því að taka reglurnar inn utan frá – eða sitja við borðið þar sem þær eru ákveðnar? Hugsum um sjávarútveginn. Við eigum ekki aðeins fiskinn. Við eigum áratuga þekkingu á veiðum, vinnslu, nýtingu, tækni og rannsóknum. Eigum við eingöngu að óttast hvað Evrópa gæti gert við íslenskan sjávarútveg? Eða eigum við líka að spyrja hvað Ísland gæti lagt Evrópu til – og hvaða áhrif við gætum haft? Sama hugsun á við um hreina orku, nýsköpun, matvæli, hugbúnað og rannsóknir. Við erum tæplega 400 þúsund manna þjóð. Innri markaður ESB telur um 450 milljónir manna. Eigum við ekki að hugsa stærra en Ísland? Við vitum heldur ekki hvernig staða okkar verður eftir tíu eða tuttugu ár. EES getur þróast. Evrópa getur breyst. Afstaða Norðmanna og Breta er að breytast. Hættan er að samningsstaða Íslands verði veikari ef við bíðum. Þess vegna snýst 29. ágúst að mínu mati um mjög einfalda spurningu. Viljum við vita hvað Íslandi stendur raunverulega til boða – áður en við ákveðum okkur? Getum við tryggt hagsmuni sjávarútvegsins? Hvað með landbúnaðinn og auðlindirnar? Getur opnari markaður skapað meiri fullvinnslu og fleiri störf hér heima? Getur stöðugra fjármálaumhverfi stuðlað að lægri vöxtum? Hvaða áhrif fengi Ísland við borðið? Og hvað gæti þetta allt þýtt fyrir unga Íslendinga eftir 20 eða 30 ár? Við getum haft mismunandi skoðanir á svörunum. En við þurfum samninginn til að vita hver svörin raunverulega eru. Lokum okkur ekki inni í einu svari. Hugsum einu sinni enn saman. Ekki um ESB eins og það var fyrir 20 árum. Ekki um gamla pólitíska skotgrafir. Heldur um Ísland eins og við viljum að það verði eftir 20, 30 og 50 ár. Við eigum ekki að ganga í ESB án þess að sjá samninginn. En hvers vegna ættum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Fáum svörin. Sjáum samninginn. Þá getum við tekið upplýsta ákvörðun um framtíð fullvalda Íslands. Höfundur er viðskiptafræðingur og MS í stjórnun og stefnumótun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun