„Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 21:49 Það urðu smá læti á hliðarlínunni enda spennustigið hátt. Vísir/Anton Víkingar höfðu betur gegn Thun í Víkinni í dag og fögnuðu súrum 3-2 sigri eftir góða frammistöðu. Það reyndist þó ekki nóg til að vinna upp forskot svissnesku meistaranna úr FC Thun frá fyrri leiknum en Thun vann einvígið 5-3 samanlagt og tryggði sér með því sæti í umspili Evrópudeildarinnar.
Sölvi Geir Ottesen var stoltur af frammistöðu sinna manna og þeirri baráttu sem þeir sýndu gegn Thun en um leið svekktur yfir því að Víkingar skyldu ekki ná að snúa einvíginu við og tryggja sér sæti í umspili Evrópudeildarinnar. „Við fengum á okkur tvö mörk sem við ætluðum ekki að fá á okkur. Þessi þrjú sem við skoruðum hefðu dugað okkur í framlengingu. Það er bara þannig að við getum ekki fengið á okkur fimm mörk á þessu stigi og ætlast til þess að komast áfram,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, aðspurður út í leikinn. Sölvi lýsir þó mikilli ánægju með viðbrögð leikmanna Víkings. Víkingar lentu tvívegis undir í leiknum en svöruðu í bæði skiptin og neituðu að missa trúna og leggja árar í bát. „Við lentum tvisvar sinnum undir í þessum leik og gáfumst aldrei upp. Við héldum í trúna og ég er virkilega ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa.“ Sölvi taldi Víkinga hafa verið nokkuð óheppna með að hafa ekki náð inn fjórða markinu undir lok leiksins. „Við vorum í rauninni bara óheppnir að skora ekki í lokin og koma leiknum í 4-2 og búa til alvöru stemningu og spennu hérna undir lokin. Ég er virkilega ánægður með frammistöðuna og okkur.“ Víkingar eru úr leik í undankeppni Evrópudeildarinnar en þó heldur Evrópuævintýrið áfram í umspili fyrir Sambandsdeildina. Sölvi segir að markmið Víkinga séu skýr og óbreytt. „Það er markmiðið okkar að komast áfram í Evrópu og inn í deildarkeppnina. Það breytist ekkert núna.“ Aðspurður um muninn á leikjunum tveimur sagði Sölvi Víkinga hafa verið mun betur í stakk búna til að takast á við leikstíl svissnesku meistaranna í kvöld. Hann viðurkenndi jafnframt að uppleggið í fyrri leiknum hefði mögulega ekki verið það rétta. „Við réðum betur við þeirra leikstíl í dag. Við breyttum um kerfi. Það voru kannski mistök að fara í það kerfi sem við fórum í úti í Sviss. Núna vissum við nokkurn veginn hverju við værum að mæta.“ Sölvi segir mikinn mun á því að greina lið af myndbandsupptökum og að mæta því inni á vellinum. „Við höfðum einungis séð þá á myndbandsupptökum og greint leiki. Það er aðeins öðruvísi að mæta þeim síðan augliti til auglitis. Þeir eru bara mjög góðir í því sem þeir gera. Þeir spila mjög beinskeyttan bolta og vinna seinni boltana. Við lærðum aðeins inn á það, löguðum aðeins til hjá okkur og mér fannst það ganga betur hjá okkur í dag,“ sagði Sölvi Geir.
Sambandsdeild Evrópu Víkingur Reykjavík Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira