Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 06:02 Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Vísir/Ívar Varnir Íslands hvað varðar erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi veikjast við inngöngu í Evrópusambandið að mati Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þau leggja til fjögur atriði sem þurfi að tryggja verði af aðildarviðræðunum.
Í greiningunni er spurt hver myndi njóta ávinnings sjávarauðlindarinnar til framtíðar í formi arðs, skatttekna, starfa og annarrar verðmætasköpunar. Ísland hafi lengi vel haft reglur um erlend yfirráð og sé með sérstaka heimild samkvæmt EES-samningnum til að viðhalda takmörkunum sem gilda um fjárfestingar erlendra aðila í sjávarútvegi. Eignarhald erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum má ekki vera meira en 25 prósenta hlutur. Reglunum sé ætlað að sporna gegn því að aflaheimildir Íslands færist í hendur erlendra aðila. Innganga Íslands í Evrópusambandið myndi hins vegar opna fyrir yfirráð erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi og heimild Íslands til að setja áðurnefndar takmarkanir myndi sömuleiðis falla niður. Slíkar takmarkanir myndu brjóta gegn tveimur grunnreglum innri markaðar Evrópusambandsins. Annars vegar hafi ríkisborgarar aðildarríkja rétt til þess að stofna og reka fyrirtæki í öðru aðildarríki á sömu skilyrðum og ríkisborgarar þess og eru takmarkanir á þeim rétti almennt óheimilar. Hins vegar er ekki leyfilegt að takmarka fjármagnsflutning á milli aðildarríkja Evrópusambandsins. Hætta á kvótahoppi „Varanlegar undanþágur frá grunnreglum innri markaðar ESB eru fáar og afmarkaðar. Þá eiga þær það sammerkt að byggjast á ófjárhagslegum sjónarmiðum og vera bundnar við tiltekin landsvæði, fasteignir eða menningarleg sérkenni. Þær eru yfirleitt skilgreindar með öðrum viðmiðum en ríkisfangi og hafa aðeins mjög takmörkuð áhrif á innri markað ESB,“ segir í greiningunni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur mikið talað um að með samningnum myndu fást undanþágur frá reglum Evrópusambandsins hvað varðar íslenskan sjávarútveg. Í greiningunni segja SFS að ekki liggi fyrir fordæmi fyrir því að einstök atvinnugrein sé varanlega undanskilin reglum með sambærilegum hætti. Í fyrri aðildarviðræðunum hafi afstaða sambandsins verið skýr um að takmarkanir á erlendri fjárfestingu í íslenskum sjávarútvegi samrýmdust ekki reglum þess. Því þyrfti að breyta þeim við aðild. Einhver aðildarríki hafi reynt að setja reglur til þess að koma í veg fyrir að landskvóti færist í hendur erlendra aðila, til að mynda einungis úthlutað þeim skipum kvóta sem sigla undir fána þess ríkis. Það hafi hins vegar ekki komið í veg fyrir svokallað kvótahopp sem sé þegar erlendir aðilar notfæra sér reglur sambandsins til að skrá skip sín eða stofna fyrirtæki í öðru aðildarríki. Þannig fái þeir aðgang að landskvótanum. „Kvótahopp getur einnig falist í kaupum á sjávarútvegsfyrirtækjum sem þegar hafa fengið úthlutað kvóta í viðkomandi aðildarríki. Slík háttsemi getur hæglega leitt til þess að ávinningur af landskvótanum færist að hluta til aðila sem hafa lítil eða engin raunveruleg tengsl við viðkomandi ríki.“ Sem dæmi er bent á að sænskar útgerðir hafi náð yfirráðum yfir dönskum aflaheimildum með því að kaupa stór útgerðarfélög þar. Félögin starfi áfram í Danmörku en eignarhald og ákvörðunartaka sé í Svíþjóð. Sömuleiðis hafi hollenskar útgerðir aflað sér aflaheimilda í Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu. Í Þýskalandi ráði eitt hollenskt fyrirtæki yfir nær öllum aflaheimildum í makríl. Bretar fengu strangari reglur ekki í gegn Bretar hefðu reynt að setja strangari reglur árið 1989 en Evrópudómstóllinn taldi skilyrðin ósamrýmanleg grunnreglum Evrópusambandsins. „Af dómaframkvæmd Evrópudómstólsins má ráða að aðildarríki geti, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, gert kröfu um raunveruleg efnahagsleg tengsl milli veiðistarfsemi skips og þeirra byggðarlaga í viðkomandi ríki sem háð eru fiskveiðum. Slíkar kröfur þurfa að byggjast á hlutlægum viðmiðum, vera óháðar þjóðerni og samræmast meðalhófsreglu,“ segir í greiningunni. Draga megi þær ályktanir að ekki megi krefjast tiltekins þjóðernis eða búsetu eiganda. Þá megi krefjast stjórnunar og eftirlits í ríkinu en ekki sé hægt að útiloka að starfsemin í dótturfélagi lúti stjórn erlends móðurfélags. Gera þurfi skipið út frá ríkinu en veiðiferðin sjálf þarf ekki að hefjast þar og koma þurfi reglulega til hafnar til að sýna fram á tengsl en ekki þarf að landa afla. Að lokum er óheimilt að krefjast þess að áhöfnin búi í ríkinu. Þremur áratugum eftir dóm Evrópudómstólsins hafi Bretum ekki enn tekist að vinda ofan af erlendum yfirráðum yfir aflaheimildunum. Tekið er fram að með ólíku forræði hafi Ísland og Bretland skapað mismunandi forsendur fyrir framþróun í sjávarútvegi. Fullt forræði hafi skipt máli þar sem gróflega mætti áætla að ef íslenskum sjávarútvegi svipaði til þess breska væru lífskjör á Íslandi mun lakari. Fjögur stærstu íslensku fyrirtækin minni en það allra stærsta „Umsvif sjávarútvegs eru mikil á Íslandi en fyrirtækin í greininni eru langt frá þeim stærstu í evrópskum samanburði. Tekjur fjögurra stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Íslands voru samtals 1,7 ma. USD samkvæmt lista yfir 150 stærstu sjávarútvegsfyrirtæki heims. Samanlagt voru tekjur stærstu hollensku fyrirtækjanna á listanum 4 ma. USD og þeirra spænsku 7,2 ma. USD.“ Þannig geti mun fjársterkari aðilar keypt sig inn á íslenskan markað og þurfa þeir ekki endilega að vera forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækja. Dæmi séu um að erlend sjávarútvegsfyrirtæki séu á við eða stærri en fjögur stærstu íslensku félögin samanlagt. Reynsla annarra Evrópuríkja sýni þar með að landskvótinn tryggi ekki innlent eignarhald né yfirráð yfir nýtingu hans. Í lok greiningarinnar setja samtökin fram fjóra punkta sem stjórnvöld þurfi að tryggja fari atkvæðagreiðslan þann 29. ágúst á þann veg að farið verði í aðildarviðræður. Fyrst þurfi að tryggja að Ísland hafi áfram sömu heimildir og nú til að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Verndin þurfi að ná til bæði beins og óbeins eignarhalds og þurfi Ísland að geta tryggt að raunveruleg yfirráð yfir félögum með íslenskum með íslenskar aflaheimildir séu innanlands. Að lokum þurfi framangreindar heimildir að koma fram í aðildarsamningi Íslands og Evrópusambandsins og þeim ekki breytt án samþykkis Íslands. Heiðrún Lind er forsvarsmaður greiningarinnar. Hún situr í stjórn Sýnar sem er eigandi Vísis.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Sjá meira