Innherji

Halla­laus fjár­lög ekki í spákortum AGS fyrr en árið 2031

Hörður Ægisson skrifar
Í nýrri skýrslu sinni um Ísland, sem kom út fyrir skemmstu, er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) heldur svartsýnni á horfurnar í ríkisfjármálum en birtist í nýjustu fjármálaáætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Í nýrri skýrslu sinni um Ísland, sem kom út fyrir skemmstu, er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) heldur svartsýnni á horfurnar í ríkisfjármálum en birtist í nýjustu fjármálaáætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Vísir/Vilhelm

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að það takist ekki að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031, samkvæmt spá sjóðsins, en núgildandi fjármálaáætlun stjórnvalda gerir hins vegar ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Sjóðurinn horfir aðeins til aðgerða sem þegar er búið að leggja fram fyrir Alþingi og segir markmið stjórnvalda í ríkisfjármálum vera „hæfilega metnaðarfull.“


Tengdar fréttir

Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum.

AGS varar við aukinni hættu á að hag­vöxtur reynist minni en verðbólga meiri

Taumhald peningastefnu Seðlabankans þarf áfram að vera „nægjanlega þétt um nokkurt skeið“ eigi að tryggja varanlega og sjálfbæra hjöðnun verðbólgu, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sendinefnd sjóðsins varar einnig við því að vegna átakanna við Persaflóa sé aukinn áhætta á að hagvöxtur muni reynast minni en verðbólga meiri. Þá leggur sjóðurinn til að opinberir starfsmenn taki þátt í kjaraviðræðum samhliða einkageiranum þannig að samningalotur séu betur samstilltar, sem myndi þá stuðla að launaþróun í samræmi við framleiðnivöxt og verðbólgu.

Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“

Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×