Neitaði að svara spurningum þingmanna Samúel Karl Ólason skrifar 29. júlí 2026 16:29 Anthony Fauci, fyrrverandi yfirmaður sóttvarna í Bandaríkjunum, í þinghúsi Bandaríkjanna í dag. AP/Allison Robbert Anthony Fauci, fyrrverandi yfirmaður sóttvarna í Bandaríkjunum, neitaði í dag að svara spurningum þingmanna. Beitti hann fyrir sig fimmta ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna um rétt fólks til að fella ekki á sig sök.
Það er þrátt fyrir að Joe Biden hafi á síðustu dögum forsetatíðar sinnar veitt Fauci opna náðun en það gerði hann af ótta við að Donald Trump og Repúblikanar ætluðu sér að beita dómskerfinu gegn honum. Þrátt fyrir náðunina hafa Repúblikanar sagt að hægt væri að sækja Fauci til saka fyrir að segja þingmönnum ósatt. Í upphafsummælum sínum sagðist Fauci, sem er 85 ára gamall, sannfærður um að hann hefði verið boðaður á þennan fund svo Repúblikanar gætu fundið átyllu til að láta handtaka hann. Nefndi hann sérstaklega Rand Paul, formann nefndarinnar, sem Fauci sagði með þráhyggju gagnvart sér. Því svaraði Fauci spurningum þingmanna heimavarnanefndar öldungadeildarinnar, sem Repúblikanar stýra, öllum á þann veg að í samráði við lögmenn sína beitti hann fyrir sig áðurnefndu ákvæði. Repúblikanar mótmæltu því og kröfðu Fauci svara, sem hann varð ekki við. Blaðamaður New York Times segir Fauci hafa beitt fimmta ákvæðinu rúmlega níutíu sinnum á fundinum. AP fréttaveitan segir að Rand Paul, formaður nefndarinnar, hafi spurt út í uppruna Covid-19 og ummæli Faucis um að veiran hefði líklega ekki komið frá rannsóknarstöð í Kína. Paul gaf einnig til kynna að nefndin myndi í næstu viku greiða atkvæði um það að ákæra Fauci fyrir að vanvirða þingið. Aðrir Repúblikanar sökuðu Fauci um að hafa sóst eftir frægð og frama og að framkoma hans í starfi hefði dregið úr trú almennings á vísindi og stjórnvöld. Stór hluti fundarins fór í að rifja upp gömul menningarátök tengd Covid. Fundurinn átti að snúast um rannsókn nefndarinnar á uppruna Covid-19. Þá voru nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins sem notuðu fundinn til að dreifa samsæriskenningum um Covid og bóluefni. Einn Repúblikani, Bernie Moreno, spurði Fauci: „Hver í helvítinu heldur þú að þú sért?“ og var hann þá að skammast í Fauci vegna samkomutakmarkanna. Hann bað Fauci einnig um að standa upp og horfa í augun á fólki í salnum sem hafði verið smánað fyrir viðhorf sín vegna sóttvarnaraðgerða. Flestir Demókratar komu Fauci til varnar og sögðu hann fórnarlamb áróðurs og samsæriskenninga. Lögmenn Faucis fylgdu honum í salinn og sátu við hlið hans. Einn þeirra reyndi að tala í salnum en var vísað út sökum þess að hann hafði ekki heimild til að tjá sig. Í lok fundarins spurði Rand Paul Fauci hvort að hann bæri ábyrgð á „stærstu manngerðu plágu sögunnar“. Áhugasamir geta horft á allan fundinn hér.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira