Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Jón Þór Stefánsson skrifar 27. júlí 2026 16:12 Lögreglumaðurinn var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Karlmaður var á dögunum dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot í opinberu starfi sem hann framdi sem lögreglumaður síðasta sumar.
Honum var gefið að sök að framkvæma ólögmæta húsleit tvívegis, á sitt hvorum staðnum í Breiðholti. Í fyrra skiptið hafi hann opnað útidyrahurð með lykli sem hann lagði hald á með ólögum, og farið inn án samþykkis eigenda eða úrskurðar dómara. Í seinna skiptið hafi hann hafið leit án þess að gæta lögmætra aðferða. Hugsjónirnar fóru öfugt ofan í mannskapin Maðurinn var búinn að starfa hjá lögreglunni í tæp níu ár, en um mánuði áður en umrædd atvik áttu sér stað var hann fluttur um stöð, frá Hverfisgötu í Reykjavík yfir á Dalveg í Kópavogi. Hann hafi byrjað á nýju stöðinni með því að leggja hald á mikið magn fíkniefna og vildi hvetja menn til dáða og leiða með góðu fordæmi. Hugsjónir hans og markmið hafi hins vegar farið öfugt ofan í mannskapin. „Fljótlega hefði hann fundið fyrir því að fólk var tortryggið í hans garð,“ er haft óbeint eftir honum í dómnum. Málsvörn lögreglumannsins gekk út á það að neikvætt umtal á vinnustaðnum hafi orðið uppspretta kærunnar á hendur honum. Dómurinn gaf lítið fyrir það. Hann játaði að mestu þá háttsemi sem honum var gefið að sök, en vildi þó meina að það sem hann hafi gert hafi ekki verið saknæmt. Sagðist óvart hafa sett lykilinn á eigin kippu Varðandi fyrri ákæruliðinn sagði lögreglumaðurinn að þar sem að um gistiheimili var að ræða hafi honum verið heimil innganga inn, þar sem lögreglu sé ætlað að hafa eftirlit með gististöðum. Eigandi umræddrar íbúðar sagðist reyndar búa þar sjálfur, en leigði út herbergi ýmist í sex til tólf mánaða leigu. Þá sagðist hann aldrei hafa gefið lögreglumanninum leyfi til að fara í íbúðina. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Lögreglumaðurinn sagðist ekki hafa tekið áðurnefndan lykil með ólögum, heldur hafi hann verið með lykilinn, sem var að efri hæð umrædds húss, í vörslum sínum eftir að hafa framkvæmt húsleit á jarðhæðinni. Lögreglumaðurinn hafi óvart sett lykilinn á lyklakippu sína, en hann fannst á henni þegar húsleit var gerð á heimili hans. Hann sagði að maður sem hann hafi handtekið nokkrum dögum áður leyfi til að taka hann. Með vísan til þessa og annarra atriða þótti dómnum þótti framburður lögreglumannsins ótrúverðugur. Honum hafi átt að vera ljóst að hann mætti ekki vera með þennan lykil, eða fara inn í húsið. Hann var því sakfelldur fyrir þann ákærulið. Taldi brýna hættu Annar ákæruliðurinn varðaði það þegar lögreglumaðurinn virðist hafa verið að rannsaka fíkniefnamál. Hann taldi sig mega fara inn án úrskurðar dómstóla. Það hafi verið vegna þess að yfirmaður hans, varðstjóri á vakt, hafi verið á sama máli og hann um að brýn hætta væri. Varðstjórinn sagði hins vegar fyrir dómi að hann hafi talið að lögreglumaðurinn myndi skrifa skýrslu og óska eftir dómsúrskurði, áður en hann færi inn. Lögreglumaðurinn hafi hins vegar ekki gert það, heldur hringt aftur í hann þegar hann var kominn inn og búinn að finna fíkniefnin sem voru til rannsóknar. Dómnum þótti að ekkert benti til þess að aðgerð lögreglumannsins þyldi ekki bið. Og var hann líka sakfelldur fyrir það brot. Líkt og áður segir var lögreglumaðurinn dæmdur í skilorðsbundið fangelsi, en þrjátíu daga refsing hans mun falla niður. Þá er honum gert að greiða verjanda sínum tvær milljónir króna í málsvarnarlaun.
Dómsmál Lögreglan Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira