Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Jón Þór Stefánsson skrifar 25. júlí 2026 10:15 Ari var eftirlýstur og handtekinn á Larnaca á Kýpur. Getty/lögreglan á Kýpur Ari Sigurðsson, Íslendingur á sextugsaldri, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur, en þar var hann á dögunum eftirlýstur og svo handtekinn.
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, sem er 53 ára og samkvæmt umfjöllun kýpverskra fjölmiðla búsettur í borginni Larnaka þar í landi. Tólfta júlí síðastliðinn hafi kýpverska lögreglan birt myndir af honum ásamt persónuupplýsingum, í von um að finna hann. Það tókst, en fimm dögum síðar var hann handtekinn, og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Í svari lögreglunnar segir að málsmeðferð á hendur honum sé hafin. Ekki kemur fram í svarinu um hvað Ari sé grunaður, eða hvað hann á að hafa gert, hvenær og hvar. Hefur hlotið dóm á Íslandi Ari hlaut þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2022 fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi sem beindust gegn einni og sömu konunni. DV fjallaði um málið á sínum tíma, þar sem hann var kallaður „Ari eltihrellir“, en svo virðist sem dómurinn sé ekki lengur aðgengilegur á vef dómstólanna. Í umfjöllun DV kom fram að dómurinn yfir honum teldi rúmlega sextíu blaðsíður og að hann hafi verið sakfelldur í 136 liðum. Umrædd brot framdi hann á árunum 2017 til 2019, en honum var gefið að sök að senda á annað hundrað tölvupósta með kynferðislegum ljósmyndum af konunni til vina og kunningja hennar, sem og á fjölmiðla og víðar. Jafnframt mun hann hafa birt kynferðisleg myndskeið af henni á vefsíðum, og sent henni ærumeiðandi skilaboð.
Erlend sakamál Kýpur Íslendingar erlendis Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfarenda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira