Upp­gjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Eftir erfitt gengi að undanförnu tryggði Þróttur sér sæti í bikarúrslitum í kvöld.
Eftir erfitt gengi að undanförnu tryggði Þróttur sér sæti í bikarúrslitum í kvöld. vísir/hulda margrét

Þróttur úr Reykjavík er kominn í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir að hafa lagt ÍBV að velli, 1-0, á AVIS vellinum í Laugardal í undanúrslitum í kvöld. Þróttur mætir Fram eða Grindavík/Njarðvík í bikarúrslitum þann 12. september næstkomandi.

Er þetta í annað sinn sem Þróttur leikur til úrslita en það gerði liðið einnig árið 2021 en tapaði þá fyrir Breiðabliki í úrslitaleik.

Fyrri hálfleikur byrjaði afskaplega rólega, fyrir utan eitt gott færi hjá ÍBV, en eftir um 20 mínútna leik tók Þróttur öll völd á vellinum og fékk nokkur fyrirtaks færi.

ÍBV komst nokkrum sinnum í hættulegar stöður en náði ekki að nýta sér þær. Eina færi Eyjakvenna í fyrri hálfleik kom raunar eftir aðeins sex mínútna leik þegar Allison Lowrey skaut rétt framhjá markinu við markteiginn.

ÍBV hóf aftur á móti síðari hálfleikinn af krafti og skapaði sér nokkur góð færi en enn létu mörkin á sér standa þökk sé markvörðum liðanna.

Ísinn var svo loks brotinn á 80. mínútu þegar varamaðurinn Þórdís Nanna Ágústsdóttir skoraði fyrir Þrótt. Avery Vanderven átti þá slaka sendingu úr vörninni, boltinn barst til Bríetar Fjólu Bjarnadóttur sem var nýkomin inn á sem varamaður og hún átti þrumuskot.

Arden La-Rose varði skotið í þverslána og boltinn skoppaði fyrir framan marklínuna, Sandra Voitane hikaði við að hreinsa frá og Þórdís Nanna fleygði sér á boltann og kom honum yfir línuna.

Reyndist þetta sigurmarkið og fagnaði Þróttur sætum sigri.

Atvik leiksins

Á 87. mínútu vildi Þróttur fá dæmda vítaspyrnu þegar Þórdís Nanna Ágústsdóttir átti þrumuskot sem fór rakleitt í höndina á Olgu Sevcovu. Ekkert var hins vegar dæmt þó Stefán Ragnar Guðlaugsson dómari hafi verið vel staðsettur.

Stjörnur og skúrkar

Þórdís Nanna Ágústsdóttir átti frábæra innkomu hjá Þrótti og skoraði sigurmarkið dýrmæta. Hún hefði með réttu einnig átt að fá vítaspyrnu.

Björg Gunnlaugsdóttir var stöðugt ógnandi á hægri kantinum og gerði varnarmönnum ÍBV, þá sérstaklega Helenu Heklu Hlynsdóttur, lífið leitt.

Avery Vanderven, fyrirliði ÍBV, gerði sig seka um slæm mistök þegar hún gaf boltann beint á leikmann Þróttar í aðdraganda sigurmarksins og Sandra Voitane hefði líka átt að gera betur þegar hún hikaði við að hreinsa frá áður en Þórdís Nanna skoraði.

Dómarinn

Stefán Ragnar Guðlaugsson og hans teymi voru með góð tök á leiknum fyrir utan ofangreint atvik þar sem hann hefði átt að dæma vítaspyrnu.

Stemning og umgjörð

Það var þrumustuð og stemning á AVIS vellinum og sömuleiðis vel mætt. Fólk var að týnast á völlinn í töluverðan tíma eftir að hann hófst en þá var kannski ágætt að það gerðist lítið fyrstu 20 mínúturnar. Ekki er yfir neinu að kvarta hjá Þrótti þegar kemur að umgjörð, fagmannlega að öllu staðið.

Viðtöl

„Búin að slá út ansi öflug lið“



Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni.

„Líðanin er mjög góð. Mér fannst við gera mjög vel í kvöld og spila fínan leik. Mér fannst við verðskulda sigurinn,“ sagði Jóhann Kristinn í samtali við Vísi eftir leik. Spurður hver lykillinn hafi verið að sigrinum stóð ekki á svörum.

„Sú vinna sem stelpurnar hafa lagt á sig síðustu daga. Sú ákvörðun sem þær taka síðustu daga eftir mjög erfiðar vikur í deildinni. Að berja sig saman, að standa meira saman, keppa leikinn og ætla að gera þetta saman sem lið. Það skóp sem gerðist hér í kvöld,“ sagði hann.

Allir leikirnir voru erfiðir

Þróttur hefur einu sinni áður spilað bikarúrslitaleik, árið 2021 þegar liðið tapaði 4-0 fyrir Breiðabliki. Í ár mætir Þróttur annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík og ætla Þróttarar sér alla leið í ár.

„Það er eitt og sér stórkostlegt fyrir lið að komast á Laugardalsvöll í úrslitaleik bikarkeppninnar, því að það eru ofsalega sterk lið í þessari keppni. Auðvitað geturðu verið heppinn með einhverja leið að þessu en nú erum við búin að slá út ansi öflug lið finnst mér.

Allir leikirnir voru erfiðir og stelpurnar hafa unnið sér þetta inn, eru komnar í sjálfan úrslitaleikinn. Ef þú ert kominn þangað þá ertu ekkert að fara bara til að vera með. Þú nýtur dagsins og allt það en þig langar að fá það sem er í boði,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson að lokum í samtali við Vísi.

Á leið sinni í úrslitaleikinn hefur Þróttur lagt þrjú Bestu deildarlið að velli; ríkjandi bikarmeistara Breiðabliks í 16-liða úrslitum, Víking úr Reykjavík í átta liða úrslitum og nú ÍBV. Alla leikina, heimaleiki, vann Þróttur með eins marks mun.

Viðtöl

„Mjög sárt að fá á sig svona mark“

Kristín Klara Óskarsdóttir lék vel í hægri bakverðinum hjá ÍBV þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Þrótti úr Reykjavík, 1-0, í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld.

„Mér fannst þetta skrítinn leikur. Mér fannst við ekki byrja neitt svaka vel en svo komum við inn í seinni hálfleik og þá fannst mér við byrja betur. Mér fannst við annars vera mikið meira í vörn en sókn,“ sagði Kristín Klara í samtali við Vísi eftir leik.

Fannst henni sem það hafi vantað lítið upp á til þess að leikurinn hefði snúist Eyjakonum í haf.

„Já og það var vont að fá á sig svona mark í lokin. Af öllum mörkum að fá á sig, eitthvað svona mark, það er mjög sárt. Við fengum nokkur færi sem við nýttum ekki.

Svo voru augnablik þar sem við komumst í góðar stöður en gerðum ekki nógu vel úr þeim. Annars fannst mér þær vera meira með boltann,“ sagði hún.

Þrátt fyrir vonbrigði kvöldsins hefur tímabilið hjá ÍBV verið með miklum ágætum þar sem liðið er í fjórða sæti Bestu deildarinnar sem nýliði auk þess að komast í undanúrslit bikarsins.

„Já, mér fannst við byrja það vel. Við unnum þarna nokkra leiki í röð. Við stefnum náttúrlega á að enda í efstu sætunum í efri hlutanum. Þetta gengur bara vel, eins og við ætluðum okkur fyrir tímabilið,“ sagði Kristín Klara Óskarsdóttir í samtali við Vísi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira