Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Andri Broddason skrifar 22. júlí 2026 21:17 Eggert Þór náði besta árangrinum. af íslensku leikmönnunum TBR Íslenskur hópur keppti á All England U19 í badminton í vikunni og gekk hópnum frekar vel. Eggert Þór Eggertsson komst í 8-liða úrslit í einliðaleik karla á einu sterkasta unglingamóti heims.
All England er elsta badmintonmót heimsins og er haldið á hverju ári. Þetta er eitt af fjórum Super 1000 mótum sem mætti kalla risamótin í badminton. Meðfram mótinu var byrjað að halda All England U19 og tók íslenskur hópur þátt í mótinu. Eggert Þór Eggertsson náði besta árangri íslensku leikmannanna en hann komst í 8-liða úrslit í einliðaleik karla. Hann mætti sterkum Englendingi í fyrsta leik sem hann vann í oddalotu og svo vann hann næstu tvo leiki þægilega. Í 8-liða úrslitum mætti hann indverskum leikmanni sem var gríðarlega sterkur sem náði að vinna Eggert í annars jöfnum leik. Eggert spilaði einnig í tvíliðaleik karla með Óðni Magnússyni og unnu þeir fyrsta leikinn örugglega. Þeir mættu svo gríðarsterku ensku pari í 16-liða úrslitum sem þeir náðu ekki að vinna. Íslenski hópurinn sem tók þátt á mótinuTBR Í tvenndarleik spilaði Eggert með Emmu Katrínu Helgadóttur og mættu þau Rúnari Gauta Kristjánssyni og Kötlu Sól Arnarsdóttur frá Íslandi. Leikurinn milli íslensku paranna var gríðarlega jafn en Eggert og Emma Katrín unnu í oddalotu. Í 16-liða úrslitum mættu þau svo tvenndarleiksparinu sem var efst á styrkleikalistanum og náðu Íslendingarnir að standa í hárinu á þeim þrátt fyrir tap. Iðunn Jakobsdóttir komst í 16-liða úrslit í einliðaleik kvenna eftir að hafa unnið sinn fyrsta leik örugglega. Annar leikur hennar var jafn en Iðunn náði að vinna hann í upphækkun. Í 16-liða úrslitum mætti Iðunn Ástrala sem var númer sex á styrkleikalista mótsins og tapaði Iðunn í hörkuleik. Nánari upplýsingar um úrslit íslenska hópsins má sjá hér.
Badminton Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira