Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 09:02 Jeff Bezos stofnaði Amazon og er einn ríkasti maður heims. Hann hefur lengi viljað eignast íþróttafélag. Getty/Michael M. Santiago Sky News hefur greint frá því að Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hafi átt í viðræðum um að ganga í hóp fjárfesta sem eru í viðræðum um kaup á minnihluta í enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool.
Fyrir fjárfestunum fer Amit Bhatia, fyrrverandi meðeigandi Queens Park Rangers og tengdasonur milljarðamæringsins og stáljöfursins Lakshmi Mittal. Tímaritið Forbes áætlar að auður auðjöfursins á bak við Amazon og Blue Origin, sem einnig á Washington Post, nemi tæpum 257 milljörðum dala, sem gerir hann að fjórða ríkasta manni heims. Sagt er að hann hafi áður kannað tilboð í Seattle Seahawks, sigurvegara Ofurskálarinnar í ár, og Washington Commanders, annað NFL-lið, þótt hann hafi ekki gengið frá hvorugum samningnum. Ef Bezos heldur áfram með fjárfestingu í Liverpool kæmi það samt á óvart samkvæmt Sky Sport, þrátt fyrir að því er virðist linnulaust innstreymi bandarísks fjármagns í efstu deild enska fótboltans. Um helmingur af tuttugu liðum ensku úrvalsdeildarinnar er í eigu fjárfesta sem eru aðallega með aðsetur í Bandaríkjunum, þótt eitt þeirra, Crystal Palace, sé nú að kanna sölu. Meðal annarra liða með bandaríska eigendur eru nýkrýndir meistarar Arsenal, á meðan Manchester United er enn undir stjórn Glazer-fjölskyldunnar, ásamt Sir Jim Ratcliffe, stofnanda INEOS Group. Fjárfestahópurinn – undir forystu Bhatia og með stuðningi Mittal-fjölskyldunnar – hefur ráðið ráðgjafa til að vinna að hugsanlegum samningi við núverandi eigendur Liverpool, Fenway Sports Group (FSG). Bhatia, tengdasonur indverska milljarðamæringsins Lakshmi Mittal, var stjórnarmaður og meðeigandi í QPR í 18 tímabil en sagði sig úr stjórninni og afsalaði sér eignarhaldi í félaginu í gær. „Fjárfestahópur undir forystu, stjórn og í forsvari Amit Bhatia hefur lýst yfir áhuga á að gera stefnumarkandi minnihlutafjárfestingu í Liverpool Football Club,“ sögðu eigendur Liverpool, Fenway Sports Group, FSG, í yfirlýsingu til breska ríkissjónvarpsins: BBC Sport hefur heimildir fyrir því að samningurinn við FSG hafi ekki enn verið frágenginn. Ef af fjárfestingunni yrði myndi hún fylgja svipuðu fyrirkomulagi og samningur sem gerður var árið 2023, þegar FSG seldi minnihluta í Rauða hernum til alþjóðlega íþróttafjárfestingafyrirtækisins Dynasty. FSG keypti Liverpool árið 2010 fyrir þrjú hundruð milljónir punda, þegar félagið var á barmi gjaldþrots. Samkvæmt Financial Times myndi samningur við fjárfestahópinn undir forystu Bhatia meta Liverpool á meira en sex milljarða dollara eða meira en 755 milljarða íslenskra króna.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Sjá meira