Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 09:32 Gianni Infantino fann einhverja aðdáendur til að veifa á úrslitaleik HM. Getty/Eva Marie Uzcategui Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, hefur varað við því að stækkun heimsmeistaramótsins í 64 lið myndi þýða áframhaldandi eyðileggingu fótboltaiðnaðarins undir stjórn Gianni Infantino, forseta FIFA, sem hann hvatti til að segja af sér.
Hinn 63 ára gamli Tebas hefur reglulega gagnrýnt Infantino en Spánn verður gestgjafi næstu úrslitakeppni eftir fjögur ár, ásamt Portúgal og Marokkó, og hafa komið fram tillögur um að mótið verði stækkað úr 48 liðum í 64. „Það er engin skynsemi í því að fjölga landsliðum. Fótboltaiðnaðurinn er ekki bara heimsmeistaramótið, sem er mikilvægasti viðburðurinn,“ sagði Tebas í viðtali við ítalska dagblaðið La Gazzetta dello Sport. Þeir eru að eyðileggja fótboltann „En það getur ekki allt snúist um heimsmeistaramótið. Það eru innlendar keppnir sem halda þessari íþrótt uppi. Þeir eru að eyðileggja fótboltann, fótboltaiðnaðinn sem skapar tugþúsundir starfa, fyrir viðburð sem stendur í 40 daga og sem aðeins minnihluti leikmanna tekur þátt í,“ sagði Tebas. La Liga president Javier Tebas has accused Fifa of “destroying the football industry” and called for its president Gianni Infantino to quit.“There is no opposition candidate, no one wants to present themselves to lose. This is the system, and it is a system that is sick at the… pic.twitter.com/G6GrNBBH21— Telegraph Football (@TeleFootball) July 21, 2026 „Við þurfum færri landslið og meiri vernd fyrir innlendan fótbolta á öllum stigum. Þeir gera sér ekki grein fyrir því; þeir taka ákvarðanir á ábyrgðarlausan hátt,“ sagði Tebas. Heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku í sumar var það fyrsta með 48 liðum, en áður höfðu 32 landslið tekið þátt í mótinu frá því það var stækkað úr 24 fyrir keppnina 1998. Hafa sætt gagnrýni síðustu vikur FIFA og Infantino hafa einnig sætt gagnrýni síðustu sex vikur vegna ýmissa mála sem tengjast mótinu sem haldið var í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Kvartanir hafa borist vegna þvingaðra drykkjarpása, vegabréfsáritunarvandamála fyrir fólk sem kom til Bandaríkjanna vegna mótsins og uppnámsins í kringum Folarin Balogun-málið, þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna og bandarísk stjórnvöld unnu að því að hjálpa bandaríska knattspyrnusambandinu að fá leikbanni framherjans hnekkt. La Liga president Javier Tebas has criticised Fifa over a number of World Cup decisions and called for president Gianni Infantino to step down 🗣️❌ pic.twitter.com/UAwlnul9xr— BBC Sport (@BBCSport) July 21, 2026 Þrátt fyrir allt þetta er búist við að hinn 56 ára gamli Infantino verði endurkjörinn til fjórða kjörtímabils á þingi FIFA í mars, þótt Tebas telji að hann ætti að víkja. Hans tími er liðinn „Að mínu mati þá ætti hann að segja af sér. Ég held að hans tími sé liðinn,“ bætti Tebas við. „En hann hefur stuðning kerfisins, sambandanna, það er ekki miklu meira við það að bæta, er það?“ sagði Tebas. „Það er enginn mótframbjóðandi, enginn vill bjóða sig fram til að tapa. Þetta er kerfið og það er kerfi sem er sjúkt í grunninn. Þessa daga hér í Ameríku hef ég heyrt marga tala gegn Infantino, sem eru ekki sammála því sem hann gerir. Þeir segja það, en gera svo ekkert,“ sagði Tebas. „Ég veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri, því þeir sem þegja eru fullkomlega meðvitaðir um skaðann sem fótboltinn verður fyrir,“ sagði Tebas.
FIFA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjá meira