„Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. júlí 2026 21:50 Jenný Kristín Valberg er teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð. vísir/ívar Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng hér á landi síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir of lítið hlutfall þeirra sem lenda í ástarsvikum leita sér hjálpar. Þolendur geti misst aleiguna og skuldsett sig um margar milljónir.
Um ástarsvik er að ræða þegar óprúttinn aðili myndar ástar- eða vinatengsl við einhvern á netinu með það fyrir stafni að hafa af viðkomandi fé eða persónuupplýsingar. Sá sem heldur úti svikunum villir gjarnan á sér heimildum og siglir undir fölsku flaggi á samfélagsmiðlum og öðrum stöðum á netinu. Fréttastofa hefur fjallað um mál manns á áttræðisaldri sem átti í samskiptum á vefsíðunni einkamál.is. Ári síðar var búið að hafa af honum 108 milljónir króna en þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar, segir alltof fáa leita sér hjálpar af þeim sem lenda í ástarsvikum. „Ég held að það séu mjög margir sem halda að þeir séu einir sem eru að verða fyrir þessu og koma því ekki og leita sér aðstoðar. Þetta er líka flókið því þau hafa kannski leitað til lögreglunnar og það er erfitt fyrir lögregluna að rannsaka þessi mál. Við vitum það alveg að það er verið að herja á ákveðna hópa, það er verið að herja á fólk sem er búið að missa maka, er fráskilið, er eitt eða einmitt einmanna.“ Oft sé um skipulagða starfsemi að ræða og gervigreind stundum hagnýtt til að eiga í samskiptum við marga í einu. „Það eina sem skortir í þetta samband er í rauninni nálægðin, við skulum alveg halda því til haga að viðkomandi er alltaf á leiðinni, það er alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir að hann komi. Það er oft komin mjög sterk tilfinningaleg tengsl inn í þessi samskipti sem villir rosalega fyrir þolandanum. Það eru mikil samskipti, samskipti oft á dag. Fólk er kannski farið að deila persónulegum upplýsingum.“ Hún segir það ekki vera svo að þolendur slíkra brota séu illa upplýstir. Samskipti geta staðið yfir mánuðum saman áður en svik gera vart við sig. „Það getur verið að það hafi komið upp eitthvað áfall í fjölskyldu gerandans, einhver dó, hann missti vinnuna eða var rændur. Oft er verið að biðja um smærri upphæðir í byrjun og svo vindur þetta upp á sig og maður hefur alveg heyrt dæmi þar sem viðkomandi er búinn að tapa öllu sínu og jafnvel kominn í margra milljóna króna skuld.“
Lögreglumál Efnahagsbrot Eldri borgarar Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira