Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 11:08 Töluverður vindur var á Ströndum í gær og dreifði eldurinn nokkuð hratt úr sér. Jón Steinar Sinueldur kviknaði á friðlandi á Ströndum í gær en hann hefur verið tilkynntur til lögreglu. Eldurinn kviknaði á friðlandi Dranga, sem var friðlýst árið 2021, en þeir sem slökktu eldinn segja mögulegt að hann hafi kviknað út frá sígarettu. Útlit sé fyrir að hann hafi fyrst kviknað við vörðu sem markar leiðina yfir Drangaháls.
Gönguhópur hafði farið þar um skömmu áður en eldurinn sást. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem er á Dröngum og slökkti eldinn með Jóni Steinari Guðmundssyni, segir það hafa verið erfitt fyrir þá frændur að slökkva eldinn en það tók um tvo tíma. Bæði var hvasst á svæðinu og þá hafði eldurinn legið djúpt í mosarótum og sífellt blossað upp á nýjan leik. Við slökkvistörfin fórnuðu þeir Guðmundur og Jón hinum klassíska strandaskófatnaði, gúmmístígvélunum, í verkefnið. Í heildina segir Guðmundur að um fimm til sex hundruð fermetrar hafi brunnið en mun stærra svæði hefði líklega brunnið hefðu þeir Jón ekki slökkt eldinn. Hann hefði bæði getað haldið áfram í gróðrinum og náð í mikinn rekavið sem var í fjörukambinum fyrir neðan svæðið sem brann. Eldurinn hefði getað náð í mikið af rekavið í fjörunni.Jón Steinar Glóðir loguðu í jörðinni og blossaði hann oft upp aftur, eftir að frændurnir töldu sig hafa slökkt hann.Jón Steinar Eftir að búið var að slökkva eldinn.Guðmundur Hrafn Eldurinn kviknaði nærri vörðu sem markar gönguleiðina yfir Drangaháls.Guðmundur Hrafn
Árneshreppur Gróðureldar Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Sjá meira