Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. júlí 2026 12:23 Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhaldsskólakennara segir bæta þurfi úr. Of mikill tími kennara fer í að búa til námsefni í stærðfræði þar sem námsgögn í greininni eru úr sér gengin og ljóst er að bregðast þarf við. Þetta segir formaður félags framhaldsskólakennara en samkvæmt nýrri könnun mennta-og barnamálaráðuneytisins telur enginn kennari stöðu nýnema góða í stærðfræði.
Mennta-og barnamálaráðuneytið birti í vikunni fyrstu greiningu sína á stöðu námsefnis í stærðfræði sem byggir meðal annars á könnunum sem lagðar voru fyrir grunnskólakennara og framhaldsskólakennara í júní. Um 77 prósent grunnskólakennara segjast oft þurfa viðbótarnámsefni og 84 prósent nota eigin verkefni reglulega. Þá metur enginn framhaldsskólakennari stöðu nýnema góða og 62 prósent meta hana frekar veika eða mjög veika. Ekki leyst með skyndilausnum Guðjón Hreinn Hauksson formaður félags framhaldsskólakennara segist fagna umræðu um skort á námsefni, sem hafi verið viðvarandi í áratugi. „Námsefni er gamalt og úrelt og því þurfa kennarar að eyða óheyrilegum tíma í að hanna og aðlaga efni jafnóðum. Þetta er vandamál bæði í grunn og framhaldsskólum eins og þessi könnun sýnir og þetta kemur auðvitað niður á námsárangri nemenda,“ segir hann og bætir við að það sé því mjög jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við þessa stöðu. „Ég vil samt koma því að að þetta á ekki bara við um stærðfræði og svo verður þetta ekki leyst með einhverjum skyndilausnum,“ bætir hann við. Í greiningu ráðuneytisins er lagt til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára og nýtt kjarnaefni verði valið á grundvelli faglegra gæðaviðmiða. Markmiðið sé að tryggja að kennarar fái betri stuðning. Þurfi að efla samtalið Guðjón segist vongóður um að það verði að veruleika en ljóst sé að núverandi ástand bitni á kennslu. Þá kemur fram í könnun ráðuneytisins að einungis tíu prósent framhaldsskólakennara meti samskipti við grunnskóla markviss. Hann segir ljóst að efla þurfi samtal milli skólastiga. „Almennt ættum við bara að horfa til þess að samtal milli skólastiga sé sem best, ekki bara á sviði stærðfræði heldur á sviði allra greina. Þessi samfella þarf að vera góð,“ segir hann og tekur dæmi „við ætluðum okkur að bæta þessa samfellu til dæmis þegar námstíminn til stúdentsprófs var styttur hér fyrir tíu árum síðan, þá átti samtal milli grunn- og framhaldsskóla að aukast en varð því miður ekki.“ Hann segist telja að þarna séu mikil tækifæri og að auðvitað eigi að efla þetta samtal.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Framhaldsskólar Tengdar fréttir „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Barna- og menntamálaráðherra segir stöðuna í menntakerfinu óásættanlega en endurbætur þess séu gríðarlega umfangsmikið verkefni. Mikil innviðaskuld hafi safnast upp og menntakerfið hafi verið látið sitja á hakanum. 12. júlí 2026 16:01 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
„Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Barna- og menntamálaráðherra segir stöðuna í menntakerfinu óásættanlega en endurbætur þess séu gríðarlega umfangsmikið verkefni. Mikil innviðaskuld hafi safnast upp og menntakerfið hafi verið látið sitja á hakanum. 12. júlí 2026 16:01