Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Andri Broddason skrifar 17. júlí 2026 14:01 Sam Burns og Lucas Herbert jöfnuðu báðir vallarmet Royal Birkdale vallarins. Getty/Vísir Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama.
Lucas Herbert var grátlega nálægt því að bæta vallarmet Royal Birkdale þegar hann rétt missti pútt af stuttu færi. Hann endaði því sinn hring á 62 höggum sem er jafnt vallarmeti Royal Birkdale. Branden Grace átti vallarmetið fyrir það og hafa nú tveir kylfingar jafnað það. Sam Burns átti ekki góðan hring í gær þar sem hann endaði á þremur höggum yfir pari. Honum hefur liðið aðeins betur í dag en hann spilaði seinni níu holur hringsins í dag á 30 höggum og náði fugli á síðustu þremur holunum. Til að innsigla frábærar seinni níu vippaði Burns beint ofan í holuna úr sandgryfju á átjándu holunni. Burns hefur spilað vel á risamótum ársins og endaði sjöundi á Masters og annar á Opna bandaríska risamótinu. Out of the sand and into the record books.Sam Burns also cards an impressive 62 at Royal Birkdale. pic.twitter.com/CtpUsfQfzN— The Open (@TheOpen) July 17, 2026 Báðir kylfingarnir eru að jafna lægsta skor sem hefur verið á risamóti í golfi. Risamótin eru fjögur: Opna breska, Opna bandaríska, Masters og PGA meistaramótið. Eftir að hafa jafnað vallarmetið er Sam Burns sem stendur í þriðja sæti, þremur höggum frá Lucas Herbert í efsta sætinu.
Golf Opna breska Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira