„Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 21:01 Joe Dean stillir sér upp fyrir myndatöku með pinnfána eftir að hafa sigrað í úrtökumóti fyrir 154. Opna breska meistaramótið. Getty/Oisin Keniry Joe Dean var síðasti kylfingurinn til að tryggja sér þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open, sem fer af stað á fimmtudaginn en það er eitt stórt vandamál. Hann vantar gistingu.
Þessi kylfingur frá Sheffield lék á tveimur höggum undir pari, eða 68 höggum, á mánudag og sigraði með einu höggi í „Síðasta tækifæris“-úrtökumótinu þar sem tólf keppendur börðust um síðasta sætið á 154. Opna meistaramótinu, elsta risamóti golfsins. Fyrir Dean er það að komast inn á Opna mótið verðlaun sem hann mun meta mikils en þessi góði og greinilega óvænti árangur sendir hann nú í húsnæðisleit. „Við vorum heppnir að fá hótelherbergi í nótt en það er allt uppbókað annars staðar,“ sagði Joe Dean við breska ríkisútvarpið og grínaðist svo: „Miðað við veðrið gæti ég sennilega tjaldað við hliðina á púttflötinni,“ sagði Dean. „Kannski finnum við húsbílastæði eins og í Troon árið 2024, en ég sef í bílnum ef ég þarf,“ sagði Dean. Dean er númer 268 á heimslistanum. „Ég mun grípa öll tækifæri til að komast aftur á Opna breska,“ sagði Dean. „Ég virðist spila betur á eins dags mótum. Ég veit ekki alveg af hverju, það er hugarfarið að reyna að halda sömu spilamennsku á öllum hringjum,“ sagði Dean. Kærasta Deans til langs tíma, Emily, bar kylfupokann hans í undankeppninni á mánudaginn. Þau gifta sig 21. júlí. Þegar Dean var spurður hvers vegna þau hefðu valið þessa dagsetningu sagði hann í gríni: „Það var ódýrara,“ sagði Dean. Hann starfaði sem sendill í Covid-19-faraldrinum en er núna með fast sæti á DP World-mótaröðinni. Opna breska meistaramótið í golfi verður í beinni útsendingu á Sýn Sport frá morgni fimmtudagsins.
Opna breska Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira