Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Hopp 14. júlí 2026 08:19 Eyþór Máni Steinarsson umsjónarmaður leigubílaþjónustu Hopp og Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur segja Hopp hafa breytt leiknum og komið með löngu tímabæra samkeppni inn á leigubílamarkaðinn. Leigubílaþjónusta Hopp kom inn á íslenskan markað með hvelli árið 2023. Hopp þjónustar nú um og yfir 5.000 ferðir í hverjum mánuði og kostar ferðin allt að 35% minna en hjá samkeppnisaðilum. Allir leigubílstjórar Hopp eru löggildir og aka nú um 140 bílstjórar fyrir félagið. „
Hopp er nútímaleg og stafræn leigubílaþjónusta þar sem viðskiptavinurinn veit nákvæmlega hvað ferðin kostar áður en hún hefst, getur fylgst með bílnum í rauntíma og gefið ökumanninum einkunn að ferð lokinni,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur. Hún segir að líkja megi Hopp við farveitur eins og Uber nema allir ökumenn Hopp eru löggiltir leigubílstjórar og þjónustan starfar innan íslensks regluverks. Öflugt gæðaeftirlit sé með þjónustunni þar sem stjörnugjöf og endurgjöf viðskiptavina spila lykilhlutverk. „Við viljum vita hvað viðskiptavinurinn vill og gefum færi á að gefa endurgjöf eftir hverja einustu ferð. Við fylgjumst vel með og grípum strax inn í ef einkunnir eða ábendingar gefa tilefni til þess.“ Kristín segir jafnframt að breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur, sem tóku gildi í sumar, hafi ekki haft áhrif á starfsemi Hopp. „Það hefur gætt ákveðins misskilnings um að Hopp sé ekki leigubílastöð. Við erum það og höfum starfað sem slík frá upphafi og nýlegar breytingar sem gerðar voru á lögum um leigubílaakstur hafa því engin áhrif á okkur.“ Við höldum áfram að gera ríkar kröfur til þeirra ökumanna sem aka fyrir okkur og leggjum áherslu á öryggi, gæði og góða þjónustu. Leigubíll á að vera raunhæfur kostur, það þarf ekki alltaf lúxuskerru Eyþór Máni Steinarsson, löggiltur leigubílstjóri og umsjónarmaður leigubílaþjónustu Hopp, segir að leigubíll eigi að vera raunhæfur samgöngukostur. Það hafi ekki verið raunin áður en Hopp kom til sögunnar. Hann bendir á að verð Hopp hafi haldist nánast óbreytt frá árinu 2023 á meðan stærri aðilar á markaðnum hafi hækkað verðskrár sínar. „Íslendingar nota almennt leigubíla mun minna en víða erlendis, meðal annars vegna verðs. Við teljum að fleiri eigi að geta nýtt sér þessa þjónustu þegar þeir þurfa á henni að halda, í stutta snattferð eða lengri akstur. Ein af ástæðunum fyrir lægra verði er að Hopp býður fleiri valkosti en hefðbundna leigubíla. Viðskiptavinir okkar geta valið á milli Standard-ferða, Economy-bíla og stærri eða sérútbúinna bíla eftir þörfum, jafnvel Karaoke bíla,“ segir Eyþór. „Economy-floti Hopp samanstendur af smærri, oft eldri og hagkvæmari bílum sem henta vel í styttri ferðir og eru um 20% ódýrari en Standard-ferðir hjá Hopp, sem eru þó 15% ódýrari en hjá öðrum. Það þurfa ekki allir stóran bíl eða lúxuskerru þegar þau eru bara að skreppa stutta leið. Með fleiri valmöguleikum getum við boðið lægra verð án þess að skerða þjónustuna,“ segir Eyþór. Allt í appinu og minni yfirbygging Öll þjónustan fer fram í Hopp-appinu þar sem notendur slá inn áfangastað, sjá verðið áður en ferðin er staðfest og geta fylgst með því hvar bíllinn er staddur. Þar birtast einnig upplýsingar um ökumanninn og ferðasaga notandans er aðgengileg síðar ef þörf krefur. Kristín segir að þessi rekjanleiki skipti notendur máli. Þá var nýlega kynnt ný útgáfa af Hopp appinu þar sem enn auðveldara er að panta leigubíl. „Núna mætir notandanum sérstakur gulur hnappur sem fer beint í leigubílaþjónustuna. Þar er einfalt að velja áfangastað, sjá verð, velja bílaflokk og panta ferð. „Á næstu vikum bætum við svo við möguleikanum á að bóka bíl með fyrirvara á ákveðnum tíma,“ segir Kristín. Hopp er því komið til að vera og segir Eyþór þörf hafi verið á samkeppni á markaðnum. „Það þurfti að brjóta upp einokun á þessum markaði sem hefur verið staðfest af Samkeppniseftirlitinu að var til staðar. Við opnuðum í lok árs 2023 og höfum tvöfaldast á hverju ári síðan þá og sinnum þúsundum ferða í hverjum mánuði bæði fyrir heimamenn og ferðamenn. Við hlökkum til að halda áfram að þjónusta viðskiptavini Hopp, bjóða ferðir á frábæru verði og breyta leiknum.“
Leigubílar Mest lesið Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira