„Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 21:40 Árni Guðmundsson furðar sig á framgöngu framkvæmdavaldsins. Vísir/arnar Forvarnarsamtök fordæma ummæli aðstoðarlögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og að lögreglan hafi ekki lokað sölustöðum áfengisnetverslana eftir að sala Smáríkisins var dæmd ólögleg. „
Menn eru að opna nýjar sjoppur þrátt fyrir dóminn. Menn eru að gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka,“ segir Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur og formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. Félagið gerir ásamt IOGT, SAFF og Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum alvarlega athugasemd við það sem Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarlögreglustjóri sagði í kvöldfréttum Sýnar á dögunum. Hildur var þar spurð hvort lögreglan gæti stöðvað starfsemi áfengisnetverslana eða hvort hún hefði getað það fyrr. „Alveg ábyggilega, en þetta er auðvitað mjög umfangsmikið og það væri mikið inngrip að fara í þetta að taka niður alla þessa starfsemi. Í rauninni í tilfellum sem þessum væri hægt að bara haldleggja allar vörur sem eru til sölu í ljósi þess að þetta er ólögmæt háttsemi og þannig stöðva háttsemina,“ svaraði Hildur en sagði það hægara sagt en gert að bregðast við. „Í rauninni er þetta orðið það umfangsmikið að það er bara orðið tímaspursmál núna hvað ætlar löggjafinn að gera? Hver er vilji löggjafans? Er það að þessi netsala sé heimil og þeim verði þá heimilt að starfa óbreytt áfram eða að lögunum sé breytt, þannig að þetta sé ólögmæt starfsemi eins og hefur verið dæmd og þá er komin skýr afstaða og þá er auðvitað auðveldara fyrir lögregluna að aðhafast,“ bætti hún við en viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Fræðsla og forvarnir, Bindindissamtökin IOGT, SAFF – samstarfsráð um forvarnir og Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum gera alvarlega athugasemd við þessi orð aðstoðarlögreglustjórans. „Forvarnarsamtök krefjast þess að farið verði að lögum og að lögreglan stöðvi ólögmæta netsölu áfengis strax. Það er alger lágmarkskrafa í réttarríki að lögreglan bregðist við niðurstöðu héraðsdóms, eigin áliti og áliti ríkisstjórnarinnar um ólögmæta áfengissölu,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu frá félögunum. Ummælin séu óviðeigandi Í apríl féll dómur Héraðsdóms Reykjaness þar sem sagði að áfengissala Smáríkisins væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Viðskiptavinir Smáríkisins geta pantað áfengi á netinu og ýmist sótt það á sölustaði fyrirtækisins eða fengið sent heim að dyrum. Í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki fólki að kaupa áfengi með þessum hætti. Sum þessara fyrirtækja segjast geta afhent það heim til fólks á rétt um hálftíma. „Menn eru rosalega hugsi yfir því að lögreglan tjái sig með þessum hætti, það er eiginlega algjörlega óviðeigandi,“ segir Árni í samtali við Vísi. „Þegar dómur fellur þá er það bara niðurstaðan.“ „Allir sem eru í forvörnum bjuggumst við því að lögreglan myndi bregðast við þessu og gera eins og menn gera í málum eins og þessu. Starfsemin er þá ólögleg núna þangað til annað verður ákveðið.“ „Svo kemur þetta viðtal við aðstoðarlögreglustjórann þar sem hann er eitthvað að spá í það hvort lögum verði breytt og fabúlera með það hvað verður og hvað verður ekki og hvort eitthvað á að breyta og svo framvegis, sem lögreglunni kemur ekki neitt við. Hún á bara að fara eftir lögum og loka starfsemi sem er ólögleg. Þannig að margir í mínum bransa voru hálfhneykslaðir á því að lögreglan færi að tjá sig með þessum hætti,“ bætir Árni við. Yfir níutíu dagar séu liðnir frá því að dómur féll í héraðsdómi og lögreglan eigi að framfylgja þeim dómum sem kveðnir hafi verið upp af dómsvaldinu. „Það vekur furðu fjölda manns að það sé algjört fálæti í þessu máli.“ „Lögreglan getur ekki haft skoðun á því hvernig á að framkvæma dóma og fyrirbyggja lögbrot.“ Spyr hvort framkvæmdavaldið sé handónýtt Dómurinn er mjög skýr að mati Árna og telur hann því ólíklegt að honum verði hnekkt í Landsrétti. Hann hafi furðað sig á því að það hafi tekið fimm ár að gefa út kæru í tengslum við vefsölu áfengis hér á landi. „Svo þegar loksins kemur dómur þá kemur framkvæmdarvaldið ekki og fullnustar dóminn. Þá verður maður náttúrulega að velta fyrir sér hvort framkvæmdarvaldið sé bara handónýtt hérna í landinu. Þegar þetta kerfi, sem á auðvitað að grípa til aðgerða samkvæmt lögum og reglum, bregst þá verður maður hugsi.“ „Allt í kringum þetta mál er bara mjög sérstakt. Seinagangur, fálæti, það er eiginlega allt í þessu sem er ekki gott ef við erum að byggja samfélagið á einhverjum lögum og reglum. Og að menn geti komist áfram með því að vita að þetta er ólöglegt en samt opna menn áfram verslanir.“ Skortur á pólitískum vilja mögulega haft áhrif Árni segir málið snúast meðal annars um rétt barna og ungmenna til þess að vera laus við áfengisreiti og áfengisauglýsingar. Hann veltir því fyrir sér hvort skortur á pólitískum vilja hafi haft áhrif á framgöngu málsins. „Fyrst þegar þetta byrjar þá eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, sem hafa margir hverjir verið mjög áfram um að breyta áfengislöggjöfinni, sem stjórna dómsmálunum og þá verður maður auðvitað að hugsa hvort það hafi áhrif á þetta rosalega hæga ferli.“ Árni segir það liggja fyrir hver áhrif breytinga á áfengisframboði séu. „Það þarf ekki nema að líta til Danmerkur og þá sér maður til dæmis að þar er barna- og unglingadrykkja mest í heiminum og þar er aðgengi mest. Það er þetta kerfi sem menn eru að koma með góðu eða illu hér, það er að segja sérhagsmunaaðilarnir.“ Hann gerði ráð fyrir að næsta verk lögreglu eftir að dómur í málinu gegn Smáríkinu lá fyrir yrði að loka sölustöðum. „Lögreglan og æðstu menn lögreglunnar í Reykjavík geta ekki verið að fabúlera um það hvort eitthvað verði öðruvísi einhvern tímann og kannski og eitthvað svoleiðis. Það er bara ekki þeirra hlutverk.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Netverslun með áfengi Áfengi Lögreglumál Tengdar fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Um tuttugu fyrirtæki bjóða áfengi til sölu á Íslandi þrátt fyrir dóm um að vefsala á áfengi sé ólögleg. Lögregla segir erfitt að bregðast við umfangsmikilli sölu. 10. júlí 2026 23:01 Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. 10. júní 2026 16:43 Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Smáríkið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dómi um netsölu áfengis sem féll í gær. Forsvarsmaður segir dóminn rangan og ekki skýra viðvarandi óvissu sem er í áfengissölu á Íslandi. 9. apríl 2026 11:01 „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt hvítvínsbelju og er talinn hafa brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Eigandi annarar netverslunar segir dóminn fráleitan. 8. apríl 2026 23:00 Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Um tuttugu fyrirtæki bjóða áfengi til sölu á Íslandi þrátt fyrir dóm um að vefsala á áfengi sé ólögleg. Lögregla segir erfitt að bregðast við umfangsmikilli sölu. 10. júlí 2026 23:01
Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. 10. júní 2026 16:43
Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Smáríkið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dómi um netsölu áfengis sem féll í gær. Forsvarsmaður segir dóminn rangan og ekki skýra viðvarandi óvissu sem er í áfengissölu á Íslandi. 9. apríl 2026 11:01
„Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt hvítvínsbelju og er talinn hafa brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Eigandi annarar netverslunar segir dóminn fráleitan. 8. apríl 2026 23:00