Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 00:01 Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskt regluverk.
Hann segir að kínverskir ferðamenn hafi verið um það bil 120 þúsund talsins á hverju ári og verið sérstaklega mikilvægir utan sumarháannarinnar á Íslandi. Þar spili inn í að margir Kínverjar leggi land undir fót í kringum kínverska nýárið annars vegar og hina svonefndu gullviku hins vegar sem lendi í febrúar og október. „Þetta eru svona mjög hefðbundin ferðatímabil fyrir kínverska ferðamenn og þess vegna hafa þeir komið hingað kannski frekar um vetur, haust og vor frekar en yfir sumarið,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Bandaríkjamenn, Bretar og Kínverjar hafi verið með mikilvægustu vetrarferðamönnunum á Íslandi. „Það er spurning hvort það muni dreifast eitthvað meira yfir árið ef það verður boðið upp á þessi beinu flug allt árið, það verður áhugavert að sjá.“ Air China er stærsta flugfélag landsins en Sendiráð Kína á Íslandi hefur boðað að dagsetning fyrstu flugferðarinnar verði brátt kynnt og miðasala hefjist í kjölfarið. Ráðist í markaðssetningu sem stjórnvöld hafi ekki lagt í Kínversk millistétt hefur farið ört vaxandi síðustu áratugi og um leið sá hópur fólks sem sækir í ferðalög erlendis. „Það virðist ekkert lát á því þannig að hópurinn sem hefur orðið ráð og möguleika á því að ferðast í Kína er orðinn gríðarlega stór. Við sem ferðamannaland þurfum aldrei nema alveg ofboðslega lítinn hluta, svona hlutfallslega, af ferðamönnum í veröldinni til þess að vera ánægð með okkar hlut. Það má alveg búast við því, ef það verða eigum við að segja þrjú bein flug í viku allt árið, þá náttúrulega mun það hafa veruleg áhrif og hækka þá í rauninni þessa tölu kínverskra ferðamanna til Íslands verulega, jafnvel tvöfalda hana á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Jóhannes. Hann á von á því að flugfélagið Air China og þarlendar ferðaskrifstofur muni ráðast í aukna beina markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. „Þetta er markaður sem Ísland hefur ekki markaðssett svo mikið á, eitthvað á undanförnum árum en þetta hefur ekki verið eitt af sterkustu markaðssetningarsvæðum okkar, þetta hefur verið frekar svona nýmarkaður. Það náttúrulega getur haft heilmikil áhrif þegar svona stórt flugfélag ákveður að fljúga hingað með breiðþotur. Þá er alveg ljóst að þeir munu gera töluvert til þess að fylla þær til þess að nýtingin verði mjög góð og búast við því að það gangi vel. Það er þá markaðssetning á áfangastaðnum Íslandi á þessu svæði sem við kannski höfum ekki lagt í sjálf.“ Öðruvísi að taka á móti fólki frá Kína Væntingar ferðamanna frá Kína eru að einhverju leyti ólíkar þeim frá Evrópu og Norður-Ameríku. Jóhannes segir að ferðaþjónustufyrirtæki hafi frá því fyrir heimsfaraldur skoðað hvernig þau geti tekið sem best á móti kínverskum ferðamönnum. Hafa þurfi í huga að þetta sé ekki einsleitur hópur. „Landið er stórt og það er menningarmunur innan þess alveg eins og á milli landa, þannig að við eigum líka eftir að sjá hvaðan koma þessir ferðamenn og eftir hverju eru þeir að sækjast. Eru þeir að ferðast á eigin vegum eða eru þetta ferðamenn sem munu ferðast í litlum hópum eða stórum rútuhópum? Þetta er svona allt eitthvað sem getur líka haft svolítil áhrif á það hvernig þetta dreifist bæði yfir árið og um landið.“ Jóhannes telur að íslensk ferðaþjónusta sé í grunninn ágætlega í stakk búin til að taka á móti auknum fjölda kínverskra ferðamanna. „Við höfum lært mjög mikið sem bransi undanfarin tíu ár. Það er þarna menningarmunur en langflest fyrirtækin eru búin að gera sér grein fyrir honum fyrir þó nokkru síðan. Við höfum ekki orðið vör við mikil vandamál í móttöku kínverskra ferðamanna svona undanfarin ár, ekki eins og var hérna í upphafinu þegar þetta var allt saman að springa út. Fyrirtækin hafa lært þetta mjög hratt.“ Áskoranir fylgi mögulega auknum fjölda „Það sem við kannski hjá samtökunum munum fylgjast með og ræða við eftirlitsaðila um er að það hefur loðað við ákveðnar kínverskar ferðaskrifstofur að þær komi hér inn með hópa sem eru með leiðsögumenn á sínum vegum sem ekki eru skráðir sem slíkir, með ökuleiðsögumenn sem eru í rauninni ekki með tilskilin leyfi og svo framvegis. Þannig að það þarf aðeins að fylgjast með þessu. Nú áttar maður sig ekki á því hvort stærri hluti þessara farþega verður á eigin vegum eða í hópum eða með svona litlum hópum sem eru kannski að reyna að fara aðeins á svig við reglurnar.“ Jóhannes segir þetta vel þekkt en eigi ekki einungis við um kínversk fyrirtæki. Ýmis erlend fyrirtæki hafi reynt að fara á svig við reglur á Íslandi og annars staðar í Evrópu. „Þetta er verkefni fyrir eftirlitsaðilana hér og okkur að reyna að fylgjast með og við verðum bara að sjá hvernig það verður. Það er ekkert víst að þetta aukist neitt. En það er svona betra að hafa varann á af því að það eru þarna ákveðnir hlutir sem eru þekktir sem við vitum að fylgja þessu.“
Mest lesið Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Sjá meira