Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Jón Þór Stefánsson skrifar 10. júlí 2026 21:47 Ragna hvetur fólk til að klóra sér ekki. Um þessar mundir velta margir fyrir sér hvernig best sé að forðast flugnabit, og hvað sé best að gera þegar maður er bitinn. Ragna Hlín Þorleifsdóttir, doktor í húðsjúkdómalækningum, gaf hlustendum ráð í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „
Það sem er best að gera þegar það er þegar búið að bíta mann er í fyrsta lagi að forðast að klóra, því það eykur alltaf kláðan, og þú getur fengið sýkingu ef þú klórar þér blóðs, og þú færð frekar ör ef þú klórar þér rosalega mikið,“ segir Ragna en bendir á að það geti verið erfitt, sérstaklega þegar maður er sofandi. „Það er ágætt ráð að reyna að kæla bitið, eins og bara með ísmola. Það getur snöggdregið úr kláða. Svo er gott að eiga sterakrem, eins og hydrokortison mildison, til að bera á bitin. Sterar eru semsagt bólgueyðandi. Þeir draga úr bólguviðbrögðunum í húðinni.“ Ragna bætir við að slíkt ætti að vera fáanlegt í öllum apótekum, án lyfseðils. Það sama eigi við um ofnæmistöflur, sem dragi líka úr kláða. Aðspurð út í sprey sem geti hjálpað segir Ragna: „Það eru auðvitað til allskonar sprey sem hægt er að kaupa í apótekum og búðum. Ég er svosem ekki inni í öllum þeim efnum sem eru á markaðinum. Þau eru auðvitað missterk og mis-toxísk. Maður á til dæmis ekki að vera spreyja svona spreyjum á börn, því það er meiri upptaka á efnum í gegnum húð barna heldur en fullorðinna.“ „Ég myndi frekar mæla með því að forðast bitin eins og hægt er. Ráð sem við þekkjum er að nota viftur. Þær eiga erfitt með að fljúga í vindi, þannig að sumarbústaðareigendur gætu verið með viftur inni hjá sér. Að koma hreyfingu á loftið hjálpar. Og svo þetta sem við þekkjum: Að hafa glugga lokaða, og klæða okkur ef við ætlum að vera úti þegar við vitum að þær eru á sveimi.“ Ragna segir að þau hjá Húðlæknastöðinni hafi orðið meira vör við bit á síðustu árum, og við viðbrögðum við þeim, vegna innkomu lúsmýsins og moskítóflugunnar. „Sumir eru einfaldlega með ofnæmi fyrir þessum flugum og bitunum og fá ofsafengin viðbrögð,“ segir Ragna og bætir við að þá þurfi oft að gefa steratöflur sem veiti öflugri meðferð. Ragna var beðinn um að veita hlustendum ráð ef það vildi forðast bit: „Ég myndi segja að maður ætti að forðast þá staði þar sem er mikið af þeim, ef maður getur. Og reyna að vera þar sem það er einhver vindur í gangi. Það er miklu meira af þeim í kringum vötn og þar sem er mikil stilla.“
Lúsmý Moskítóflugur Heilsa Skordýr Reykjavík síðdegis Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira