Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Stefán Árni Pálsson skrifar 10. júlí 2026 09:21 Frank Booker mun styrkja Álftnesinga til muna. vísir/sigurjón Álftnesingar ætla sér greinilega stóra hluti í Bónus-deild karla. Nýjasti leikmaður liðsins er Frank Aron Booker. Hann mætir út nes með mikla reynslu.
Leikmaðurinn skrifaði undir tveggja ára samning við Álftnesinga í gær en hann kemur til liðsins frá Val þar sem hann vann alla þá titla sem í boði eru á Íslandi. Hann kemur því með mikla reynslu inn í klúbbinn. Álftanes hefur nú þegar samið við Luka Gasic frá Stjörnunni, Dedrick Deon Basile frá Tindastóli, Collin Pryor frá Selfossi og þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson tók við liðinu. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar eru þeir hvergi nærri hættir. Erfið ákvörðun „Mér leið bara eins og það væri tími til að breyta aðeins til. Ég elska alla þarna í Val en bara fyrir mig var þetta bara ákvörðun, mjög erfið ákvörðun en eitthvað sem mig langaði líka að gera,“ segir Frank í Sportpakkanum á Sýn í gær en faðir hans, Frank Booker eldri, féll frá fyrr á þessu ári. „Pabbi féll frá og þá fór ég að hugsa, er þetta eitthvað sem ég þarf að gera? Ég tók bara mánuð í að hugsa þetta almennilega og við konan fórum út til Póllands og gerðum bara okkar í fríinu og komum til baka og þá langaði mig aðeins að breyta til og sjá hvað gerðist.“ Frank Booker hefur unnið alla þá titla sem í boði eru með Valsmönnum og mætir út á nes með mikla reynslu. Spilar ekki endalaust „Ég kem með mína reynslu og þú veist Baldur [Þór Ragnarsson] er nýbúinn að vinna einn líka og þessir strákar sem eru í kring eru mjög svangir í eitthvað nýtt þarna líka, þannig að þú veist það er bara geggjuð orka þarna. Það voru nokkur lið sem ég var að skoða en mér leið bara best þarna á Álftanesi, ekkert á móti Val. Þetta var bara ákvörðun sem ég vildi taka núna 32 ára og þú veist ég er ekki að fara að spila körfubolta endalaust og langar aðeins að breyta til.“ Leikmaðurinn meiddist illa í einvígi gegn Grindavík í úrslitakeppninni í Bónus-deildinni í vor. Útlit var fyrir að hann hefði hnéskeljarbrotnað. „Ég slapp bara mjög vel miðað við þarna hvernig þetta leit út fyrst og þetta voru bara upplýsingar sem ég fékk frá bráðamóttökunni að þetta væri bara brot og ég yrði frá í fjóra til sex mánuði. En síðan þegar ég fór til bæklunarlæknis þá kemur í ljós að þetta hafi bara verið sprunga og einhverjar taugar og liðband skaddast. Svo ég verð bara frá í tíu vikur,“ segir Frank og bætir við að hann verði hundrað prósent klár í fyrstu umferð í haust en Bónus-deild karla hefst 8. október en fyrsti leikur Álftnesinga er gegn Hetti.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Valur Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Tvítugur strákur fær næstum því tólf milljarða króna samning Sport Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Fótbolti Fleiri fréttir LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Sjá meira