Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Atli Ísleifsson skrifar 10. júlí 2026 06:49 Starfsmenn vinnuskólans á Hellu hafa verið að hreinsa beðin síðustu daga. Vísir/Vilhelm Lægðardrag skammt norðaustur af landinu beinir suðvestan- og vestanátt til landsins og verður víða gola eða kaldi og skúrir nú í morgunsárið.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag fjarlægist dragið og það mun draga úr vætu, yfirleitt úrkomulítið síðdegis. Hiti verður á bilinu átta til átján stig, mildast suðaustan- og austanlands. Bætir í vind norðvestantil í kvöld. Búast má við hvössum sunnan- og suðvestan vindstrengjum á norðvestanverðu landinu í nótt og fyrramálið, til dæmis á norðanverðu Snæfellsnesi og Ströndum. „Á morgun verður öflug hæð á milli Íslands og Skotlands og mun hún beina til okkar hlýrri suðvestan- og sunnanátt, víða 5-13 m/s en allhvasst um landið norðvestanvert. Á Norðaustur- og Austurlandi verður léttskýjað og mjög hlýtt, hiti á bilinu 17 til 25 stig, en suðvestan- og vestantil má búast við súld eða dálítilli rigningu og 10 til 15 stiga hita,“ segir á vef Veðurstofunnar,“ sergir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s, en 13-18 um landið norðvestanvert. Súld eða dálítil rigning suðvestan- og vestantil og hiti 10 til 15 stig, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi með hita 17 til 25 stig. Á sunnudag: Sunnan og suðvestan 8-15, en 13-20 um landið norðvestanvert. Rigning eða súld vestanlands, en bjart með köflum á austurhelmingi landsins. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Sunnan og suðvestan 5-13 og rigning eða súld, en úrkomuminna á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast um landið norðaustanvert. Á þriðjudag: Sunnan 5-13 og rigning, einkum um landið vestanvert. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Breytileg átt og rigning víða um land. Hiti 9 til 18 stig, mildast á Austurlandi. Á fimmtudag: Norðvestlæg eða breytileg átt og dálítil væta með köflum. Hiti 8 til 17 stig, mildast syðst.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira