„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. júlí 2026 21:00 Kristín Edwald, formaður landskjörstjórnar. vísir/sigurjón Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða.
Nú styttist óðfluga í að landsmenn gangi inn í kjörklefa þann 29. ágúst til að ákveða hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á nýjan leik. Fréttastofa fjallaði á dögunum um að umræðan um atkvæðagreiðsluna og um hvað ræðir hafi verið nokkuð á reiki. Landskjörstjórn hefur nú opnað vef með helstu upplýsingum. Vefinn má berja augum í spilaranum hér að neðan. Vefsíðuna má finna á slóðinni kosningar.is eða thjodaratkvaedi.is og þar má finna hnitmiðuð svör við ýmsum spurningum líkt og hvað gerist ef niðurstaðan verður já og hvað gerist ef að niðurstaðan verður nei. Meðal svara er hvað þurfi að gerast til Ísland gangi í sambandið og hvað aðildarviðræðurnar kosta en það eru um tveir milljarðar og munu kosningarnar sjálfar kosta nokkur hundruð milljónir. Kristín Edwald, formaður landskjörstjórnar, segir um mikla vinnu að ræða. „Þetta er í fyrsta skipti sem landskjörstjórn sinnir þessu hlutverki á grundvelli nýju kosningalaganna sem tóku gildi árið 2022. Svo verður líka gefinn út bæklingur sem verður dreift í hvert hús eftir verslunarmannahelgi.“ Vefurinn þykir sá fínasti.vísir/sigurjón Lagt er upp með að upplýsingarnar séu hlutlausar. Samið var við Lagstofnun Háskóla Íslands til að sinna verkefninu. „Þá samdi Lagastofnun líka við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um að setja saman rýnihópa og skipuleggja þá sem fóru yfir textann áður en hann var birtur. Þetta er mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus í því og Svör við sumum álitamálum sem hafa verið hávær í umræðunni finnast ekki á vefsíðunni. Þar má til dæmis nefna hvort aðlögun að Evrópusambandinu hefjist við aðildarviðræður. „Sumar spurningarnar sem eru þarna undir eru flóknar og það er ekkert auðvelt að setja þá einföld eða tæmandi svör þarna inni. Eins og við vitum öll þá eru ákveðin atriði umdeild og þessari síðu er ekki ætlað að skera úr um þau atriði.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Utanríkismál Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira