Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júlí 2026 19:55 Halldóra og Guðný eru bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ. Samsett Oddvitar Framsóknar og Samfylkingar í Reykjanesbæ gagnrýna aðferðir nýs meirihluta í hagræðingaraðgerðum. Í þeim felist að ráða fjóra ráðgjafa bæjarstjóra. Meirihlutinn hafnar fullyrðingum fulltrúanna.
Fyrr í dag sendi Reykjanesbær frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar, skrifuðu grein á Vísi með fyrirsögninni „Hagræðingar“ í Reykjanesbæ. „Tveimur mánuðum eftir kosningar leggur Sjálfstæðisflokkurinn fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar málið „úttekt á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar“. Þar hefur nýr meirihluti fundið út hvernig best sé að ná fram hagræðingu, með því að ráða inn fjóra ráðgjafa bæjarstjóra,“ skrifa bæjarfulltrúarnir en Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn mynda meirihlutasamstarf í bænum. Þessir fjórir ráðgjafar séu aðstoðarmaður bæjarstjóra, verkefnastjóri hagræðingaraðgerða og ráðgjafi í hagræðingarteymi auk þess sem aukið er við stöðu formanns bæjarráðs sem fær launahækkun. Gunnlaugur Kárason er formaður bæjarráðs og oddviti Miðflokksins. Eigi allir ráðgjafarnir að aðstoða við hagræðingarnar. „Umræddur formaður verður á hærri launum en formaður bæjarráðs í Kópavogi og í Hafnarfirði,“ segja Guðný og Halldóra. Í fundargerð bæjarráðsins er launahækkunin rökstudd og segir það að hagræðingar- og umbótaverkefnin leiði til aukins hlutverks formannsins. Til að mynda eigi hann að eiga í samskiptum við formenn ráða og nefnda sveitarfélagsins í því skyni að samræma störf þeirra og tryggja skilvirka og hagkvæma stjórnsýslu sveitarfélagsins. Gervigreindarforritið leiki fulltrúana grátt Guðný og Halldóra bókuðu gegn liðnum á fundinum og sögðu að verið væri að auka fjárhagsleg útgjöld sveitarfélagsins um tugi milljóna. „Hér er nýr meirihluti að samþykkja að út árið 2026 verði þrír bæjarstjórar í vinnu hjá sveitarfélaginu sem kostar Reykjanesbæ tæpar 10 milljónir á mánuði. Þetta er að okkar mati óábyrg ráðstöfun á skattfé íbúa sveitarfélagsins,“ bókuðu þær. Fulltrúar meirihlutans í bæjarráði bókuðu einnig undir liðnum og höfnuðu bókun minnihlutans. Þegar hafi sveitarfélagið sparað hátt í tuttugu milljónir króna með fækkun pólitískra nefnda og lækkun launa bæjarstjóra og aðstoðarmanni bæjarstjóra. „Eina fólkið sem slær ryki í augu bæjarbúa eru þeir sem segja að við séum með þrjá bæjarstjóra. Hér er beinlínis logið og engu líkara en að gervigreindarforrit oddvita minnihlutans sé að leika þá grátt,“ bókaði meirihlutinn. „Hér er að störfum einn bæjarstjóri. Rétt er að fyrrverandi bæjarstjóri er á biðlaunum eins og tíðkast í öllum sveitarfélögum, það er þó ekki ljóst að önnur sveitarfélög hafi gert sömu mistök og minnihlutinn hér í Reykjanesbæ sem gleymdi að gera ráð fyrir biðlaununum í fjárhagsáætlun.“ Guðný og Halldóra settu einnig út á lengd verkefnisins sem er tíu mánuðir. Árið 2014 hafi annar ráðgjafi verið ráðinn til að endurreisa sveitarfélagið sem var þá í verulegum fjárhagsvanda en hann hafi aðeins verið að störfum í þrjá mánuði. „Báknið sem umræddir menn ræddu ítrekað um í aðdraganda kosninganna virðist vera að blása út, en í nafni hagræðingar.“
Reykjanesbær Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira