Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júlí 2026 14:52 Í Facebook-færslu á vegum Grafarvogskirkju segir að regnbogafáninn verði málaður aftur við kirkjuna á næstu dögum. Vísir/Sigurjón Búið er að hreinsa tröppurnar við Grafarvogskirkju en málað var yfir regnbogafána sem prýddi tröppurnar í gærnótt með íslensku fánalitunum.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir segir gjörninginn ekki hafa verið á vegum kirkjunnar í samtali við fréttastofu. Í myndefni sem lögregla hefur skoðað sjáist tveir menn vinna skemmdarverkin í skjóli nætur. Lögregla rannsakar nú málið sem hatursglæp. Háþrýstidæla var notuð við þrif á stéttinni framan við kirkjuna.Vísir/Sigurjón Grafarvogskirkja hefur sagst ætla að standa fyrir því að regnbogafáninn verði málaður aftur við kirkjuna á næstu dögum. Vísir/Sigurjón „Við erum stolt af Pride fánanum í tröppunum okkar og munum á næstu dögum vinda okkur í að mála hann aftur á tröppurnar og þiggjum sannarlega hjálp frá ykkur við það,“ segir í Facebook-færslu á vegum kirkjunnar. Arna Ýrr sóknarprestur í Grafarvogskirkju segir Þjóðkirkjuna halda fánalögum í heiðri og að íslenska fánanum sé flaggað daglega við Grafarvogskirkju, sem og aðrar kirkjur.Vísir/Sigurjón Lögreglu hafi borist einhverjar ábendingar um málið en verið sé að vinna úr þeim. Enginn hafi verið yfirheyrður að svo stöddu að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á upptöku úr eftirlitsmyndavélum sjáist tveir menn við verknaðinn en hún getur ekki fullyrt hvort fleiri hafi komið að skemmdarverkinu. Íslensku fánalitnirnir voru málaðir yfir regnbogafánann á tröppum við Grafarvogskirkju. „Ég verð að segja að sem biskup að þá sakna ég krossins í fánanum. Þetta líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands og fyrrverandi sóknarprestur í Grafarvogskirkju.Vísir/Vilhelm Atvikið hefur vakið þónokkra umræðu en Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra blandaði sér í umræðuna og sagði: „Það er sorglegt að horfa upp á (og hlusta á) fólk sem virðist vilja fela fánanum nýtt og ógeðfellt hlutverk. Gera hann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa í samfélaginu. Við munum ekki leyfa því að gerast. Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð einn daginn að popúlistar og rasistar hafi náð að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans og hvað það þýðir að flagga honum,“ í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hinsegin Þjóðkirkjan Íslenski fáninn Reykjavík Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira