Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar 9. júlí 2026 15:15 Tannlækningar kosta mikið á Íslandi. Fjölmargir láta þær því mæta afgangi og sitja uppi með gríðarleg vandamál þegar líður á ævina. Sem dæmi má taka að margir eru með framtennur í sæmilegu lagi en vantar flesta eða alla jaxla. Þá eru margir tannlausir en með gervigóma sem þeir eru ósáttir við, sérstaklega neðri góminn sem vill vera óstöðugur. Kostnaðurinn við að fá fastar lausnir í staðinn leikur oft á bilinu 5 til 10 milljónir króna hér heima. Svo hár kostnaðar er mörgum ofviða. Víða erlendis, til dæmis í Ungverjalandi er tannlækninga kostnaður helmingi lægri. Svo gengur þjónustan hraðar fyrir sig á stórum tannlækningastofum með allar sérfræðigreinar og tannsmíðaverkstæði innanhúss. Fjölmargir Íslendingar sækja því tannlækninga þjónustu þar sem hún er ódýrari og spara nokkrar milljónir, jafnvel þó fara þurfi oftar en einu sinni eftir þjónustunni. Lífeyrisþegar og börn, njóta greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands (Sjúkra) við tannlækningar hér heima og erlendis á grundvelli EES regluverks. Mörg í þeim hópi hafa lítið milli handanna og er þessi greiðsluþátttaka afar mikilvæg. Því er miður að þeim sem sækja þessa nauðsynlegu þjónustu erlendis er gert erfitt fyrir að fá greiðsluþátttökuna. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga er mikilvæg fyrir marga Sjúkra greiða allt að 75% af tannlækningakostnaði lífeyrisþega miðað við tiltekna hérlenda verðskrá. Þetta er nokkuð gott en „djöfullinn býr í smáaletrinum“ það er tilteknum hámörkum og tæknilegum hindrunum. Tökum dæmi: 1. Fyrir þau sem hafa misst tennur, eru með skörð, bjóðast implantar og krónur. Hér á land kostar settið í kringum 500.000 kr. en í Búdapest til dæmis frá 150.000 til 275.000 kr. Margir eldri borgarar hafa misst margar tennur, sumir hafa nánast bara framtennur eftir. En Sjúkra taka bara þátt í að greiða 1 implant og 1 krónu á ári, eða um 140.000 kr. Þetta gerir mörgum ókleyft að láta gera við nema þá 1 skarð á ári sem þýðir mörg viðbótar ár af tannleysi.2. Alveg tannlausir og fólk með bara fáar veiklaðar tennur getur fengið „fasta lausn“ það er „heilbrýr“ á implöntum sem yfirleitt þurfa að vera 4 eða 6 í hvorum góm. Svona lausn er erlendis kölluð „All on 4 eða All on 6“. Á Íslandi kosta slíkar lausnir nálægt 8 milljónum króna en í Búdapest í kring um 4. Þó fara þurfi 3-4 ferðir til að sækja slíka þjónustu sparar fólk sér nokkrar milljónir króna. Endurgreiðslur Sjúkra miðast við 4 implönt í efri góm og 2 í neðri auk þátttöku í krónunum. Heildarþátttaka Sjúkra mun vera nálægt 1,5 milljónir króna í svona lausnum en sjúklingurinn greiðir mismuninn. Sjúkra gerir hér kröfu um fyrir fram umsókn. Þessi krafa þýðir að lífeyrisþegi sem sækir þjónustuna erlendis getur þurft að fara sérstaka ferð bara til að fá það sem til þarf til að sækja um greiðsluþátttökuna. Þá þarf hann að leggja út fyrir kostnaðinum og sækja um greiðsluþátttöku frá Sjúkra eftir á sem oft reynist snúið. Það vefst fyrir mörgum að sækja greiðsluþátttökuna til Sjúkra og margir gefast hreinlega upp við það og láta sig hafa að greiða allt úr eigin vasa sem tekur verulega á fyrir suma en aðrir sleppa aðgerðum og sitja uppi með sína lélegu tannheilsu. Þetta getur ekki hafa verið tilgangur löggjafans þegar hann veitti ráðherra heimild til að setja reglugerð um framkvæmd greiðsluþátttöku í tannlækningum erlendis. Í tilfelli tannkrónu viðgerða svo sem holufyllinga óska Sjúkra eftir upplýsingum um alla fleti tanna sem gert hefur verið við. Þetta kemur ekki fram á venjulegum reikningum frá erlendum stofum. Hliðarnar teljast 5, holu fyllingar tiltölulega ódýrar og því er þetta mikill sparðatíningur sem tefur fyrir endurgreiðslum og skapar leiðindi. Í Danmörku og fleiri nágrannalöndum er þessu löngu hætt. Endurgreðslan er bara tiltekið hlutfall af kostnaðinum. Eldri borgarar í sérstakri stöðu Sérstaklega ber að líta til stöðu eldri borgara og öryrkja. Margir í þessum hópum: hafa takmarkaða færni í stafrænum samskiptum, treysta á aðstoð annarra við umsóknir, og eiga erfitt með að standa í flóknu umsóknarferli á eigin spýtur. Að gera kröfu um fyrir fram umsókn þegar um tóma góma er að ræða felur í reynd í sér aðgangshindrun sem bitnar mest á þeim sem hafa minnsta bolmagn til að mæta henni. Þörf á endurskoðun Það er skiljanlegt að stjórnvöld vilji hafa eftirlit með útgjöldum úr ríkissjóði. En reglur þurfa að taka mið af raunverulegum aðstæðum. Krafa um fyrir fram umsókn er ónauðsynleg, erfið í framkvæmd fyrir viðkvæma hópa sjúklinga og veldur þeim verulegum aukakostnaði og því ekki í samræmi við markmið laganna. Hámarkið 1 implant og 1 króna á ári, er lágt. Krafa um latnesk heiti flata tannkróna sem gert er við er ónauðsynleg. Niðurstaða Réttur til greiðsluþátttöku lífeyrisþegar í tannlækningum þarf að vera raunhæfur í framkvæmd. Ef reglur gera fólki ókleift að nýta rétt sinn nema með óhóflegum tilkostnaði eða fyrirhöfn, þá er ekki lengur um jafnræði að ræða. Það er því tímabært að endurskoða framkvæmd þessara reglna — ekki til að veikja kerfið, heldur til að tryggja að það þjóni þeim sem mest þurfa á því að halda. Höfundur er framkvæmdastjóri HEI Medical Travel. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tannheilsa Mest lesið Halldór 01.08.2026 Halldór Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun