„Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júlí 2026 13:00 Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Vísir/Lýður Valberg/Vilhelm Aðstæður sem skólahjúkrunarfræðingum er boðið upp á í grunnskólum er dapurleg, að sögn formanns félags hjúkrunarfræðinga. Jákvætt sé að yfirvöld skapi heildræna áætlun til framtíðar í málaflokknum en erfitt sé að byggja upp þjónustu þegar hún sé stopul.
Ný reglugerð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu tekur gildi 1. janúar á næsta ári þar sem meðal annars aukin áhersla verður lögð á geðheilbrigði og tannheilsu. Formaður félags hjúkrunarfræðinga segir jákvætt að yfirvöld að skapa heildræna áætlun til framtíðar í málaflokknum sem hjúkrunarfræðingar og þróunarmiðstöð heilsugæslunnar hafi sinnt um árabil í gegnum heilsuvernd grunnskólabarna. Vilja framhaldsskólanema með Þó séu ákveðnir hlutir sem FÍH sakni í reglugerðinni. „Við söknum þess að ekki sé talað sérstaklega um heilsuvernd barna í framhaldsskólum. Það er nýlega sem fengist hefur heimild fyrir 30% stöðu hjúkrunarfræðinga í framhaldsskólum,“ segir Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þetta hafi félagið bent á í umsögn um reglugerðina. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins segir að efnt hafi verið til vinnustofu með hagaðilum heilbrigðis- og menntakerfisins en að sögn Helgu Rósu var FÍH ekki boðað þangað. Herferð í vetur sýndi fram á dapurlegar aðstæður Þá hafi félagið lagt áherslu á fulla viðveru hjúkrunarfræðinga í skólum, meðal annars til að byggja upp traust gagnvart nemendum. Samkvæmt reglugerðinni á að meta heilsu skólabarna að minnsta kosti fjórum sinnum á grunnskólagöngunni. „Það er mjög erfitt að byggja upp þjónustu þar sem þjónustan er stopul. Mér þótti dapurt að þegar við fórum í herferð í vetur þar sem við heimsóttum nokkra vinnustaði og sjá aðstæðurnar sem hjúkrunarfræðingum í skólum er boðið upp á. Hún var dapurleg, einhverjir eldgamlir bekkir og einhverjar kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í,“ segir Helga Rósa. „Þeir eru með mjög stopula viðveru og það er ekki til þess að byggja upp þetta traust og þennan sýnileika sem þarf að vera til staðar svo að þjónustan nái að blómstra.“ Áform yfirvalda séu metnaðarfull en þá þurfi fjármagn að fylgja. „Það hefur skort á meiri viðveru hjúkrunarfræðinga í skólunum, þannig að þeir geti sett sig betur inn í málin og kallað til þá aðila sem þörf er á.“
Grunnskólar Framhaldsskólar Heilbrigðismál Heilsugæsla Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira