Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sigurgeir Þorkelsson skrifar 9. júlí 2026 09:00 Gunnlaugur Már Briem er formaður Sjúkraþjálfarafélags Ísland. Samsett Félag sjúkraþjálfara gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði í aðdraganda þess að kynnt voru komugjöld til sjúkraþjálfara sem taka munu gildi fyrsta september. Félagið bendir á hættu þess af því að gjaldtaka sem þessi geti dregið úr aðgengi, seinkað endurhæfingu og dregið úr líkum á því að fólk leiti sér aðstoðar. Brýnt sé að setja hámark á hve mikið skjólstæðingar greiði árlega í komugjald.
Almennt komugjald verður 1500 krónur en þúsund krónur fyrir aldraða og fimm hundruð krónur fyrir öryrkja. Kostnaður fyrir aldraðan einstakling sem nýtir sér þjónustu vikulega gæti því aukist um fimmtíu þúsund krónur árlega og fyrir einstakling á vinnumarkaði, sem sækir vikulega sjúkraþjálfun til að viðhalda vinnufærni, um tæplega áttatíu þúsund krónur á ári. Heilbrigðisráðuneytið tilkynnti á sama tíma um hækkun komugjalda á heilsugæslustöðvar. Félag sjúkraþjálfara lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri gjaldtöku hins opinbera á þjónustu sjúkraþjálfara og varar við því að slík gjaldtaka geti haft áhrif á aðgengi almennings að sjúkraþjálfun, sérstaklega þeirra sem þurfa á viðvarandi þjónustu að halda eða búa við þrengri fjárhagsstöðu. Félagið gagnrýnir að hafa fyrst fengið upplýsingar um málið í gegnum fjölmiðla. Félagið veit enn ekki hvernig gjaldtakan verður útfærð, að því er kemur fram í tilkynningu. Ljóst sé að kostnaður fjölmargra einstaklinga muni aukast verulega fyrir þjónustu sem fæstir hafa val um hvort þeir sækja sér. Félagið gerir ráð fyrir því að kostnaður einstaklinga sem eru með viðvarandi einkenni og þurfi að jafnaði vikulega þjónustu yfir árið til að viðhalda færni eða vinnugetu geti aukist um 60 til 80 þúsund krónur og jafnvel verulega umfram það. Það sé 80 til 105 prósenta hækkun miðað við gjöld í dag. Þá sé eingöngu verið að horfa til þjónustu hjá sjúkraþjálfara en í sömu tilkynningu greindi heilbrigðisráðuneytið frá því að komugjöld á heilsugæslu og síðdegisvakt heilsugæslu muni hækka. Komugjöld heyra ekki undir sjúkratryggingar og telja ekki gagnvart hámarksgreiðsluþaki sjúklinga og gæti samspil þessara gjalda því haft veruleg áhrif á þau sem glíma við langvarandi heilsufarsvanda. Félagið segir að með þessu sé verið að auka kostnaðarþátttöku almennings um ríflega milljarð króna. Þar af megi ætla að ellilífeyrisþegar þurfi að greiða að minnsta kosti 340 milljónir króna aukalega fyrir þjónustuna og almennir notendur um 580 milljónir króna, miðað við notkunartölur ársins 2025. Félagið gagnrýnir upplýsingagjöf af hálfu ráðuneytisins en í fréttum ráðuneytisins hefur verið vísað til þess að kostnaður vegna sjúkraþjálfunar sé 3,4 milljörðum yfir fjárlögum. Félagið telur þá framsetningu misvísandi, stjórnvöld hafi bæði vanáætlað þjónustuþörf og vanfjármagnað þann samning sem gerður var. Þá sé aukin nýting þjónustunnar ekki merki um óeðlilega notkun, heldur endurspegli hún aðgengisþörf sem hafði safnast upp yfir lengri tíma. Þegar aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu batni sé eðlilegt að fleiri einstaklingar hafi tök á að sækja sér þá þjónustu sem þeir þurfa. Félagið segist munu halda áfram að koma sjónarmiðum sjúkraþjálfara og notenda þjónustunnar á framfæri með það að markmiði að lágmarka skaðleg áhrif ákvörðunarinnar og verja aðgengi að sjúkraþjálfun. Lausnin við vanfjármögnun heilbrigðisþjónustu eigi ekki að vera sú að færa verulegan kostnað yfir á sjúklinga. Slík nálgun geti aukið ójöfnuð, dregið úr forvörnum og endurhæfingu og leitt til meiri kostnaðar annars staðar í heilbrigðiskerfinu til lengri tíma. Brýnt sé að sett verði skýrt hámark á greiðslur einstaklinga vegna komugjalda. Félag sjúkraþjálfara mun áfram beita sér fyrir því að sjúkraþjálfun verði aðgengileg, fagleg og sjálfsagður hluti af opinberri heilbrigðisþjónustu. Félagið hvetur stjórnvöld til raunverulegs samráðs um útfærslur sem varða bæði sjúkraþjálfara og almenning og leggur áherslu á að ákvarðanir um greiðsluþátttöku byggi á skýrum, gagnsæjum og réttum upplýsingum.
Sjúkratryggingar Heilbrigðismál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira