„Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 8. júlí 2026 11:10 Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands. vísir/vilhelm Skemmdarverk á regnbogafánum við kirkjur eru orðin fastur og sorglegur árlegur liður í aðdraganda hinsegin daga. Þetta segir biskup Íslands sem segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og hinsegin fánann.
Málað var yfir hinsegin fána sem prýðir tröppur við Grafarvogskirkju í nótt. Í stað hinsegin fánans sem hefur glætt tröppurnar lífi í þó nokkur ár blasir þar nú við flennistór íslenskur fáni. Sóknarprestur við Grafarvogskirkju staðfestir að gjörningurinn sé ekki á vegum kirkjunnar. Óprúttnir aðilar hafi verið að verki í skjóli nætur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú málið. „Ég verð að segja að sem biskup að þá sakna ég krossins í fánanum. Þetta líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands og fyrrverandi sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Vozinha, markmaður Grænhöfðaeyja, hefur slegið í gegn á heimsmeistaramótinu í fótbolta en hér heldur hann á fána þjóðar sinnar.Buda Mendes/Getty Images Guðrún tekur fram að tækifærið verði nýtt til að mála hinsegin fánann á nýjan leik. Hún segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og fána hinsegin fólks. „Ég skil vel að fólk vilji gera íslenska fánanum hátt undir höfði en þú gerir það ekki með því að laumast með málningardollur um miðja nótt. Það á að flagga fánanum á stöng og það er gert við allar kirkjur á Íslandi. Við eigum einn fallegasta fána sem til er en við göngum ekki á honum. Það eru beinlínis brot á fánalögum.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skemmdarverk er unnið við kirkjuna en sumarið 2022 í aðdraganda hinsegin daga var skrifað orðið antikristur á fánann. Sama sumar voru hinsegin fánar skornir af fánastöng við Hjallakirkju í Kópavogi. „Svo eru þetta fastir og sorglegir liðir eins og venjulega á sumrin þegar fer að líða að hinsegin dögum að þá byrja svona skemmdarverk, fánar eru skornir niður og annað og það er náttúrulega ekki boðlegt.“ Hún segir það skjóta skökku við að ást á fósturjörð sé sett upp á móti hinseginleika með þessum hætti. „Ég elska íslenska fánann en ég elska líka hinsegin fánann. Bæði er fallegt og báðir fánarnir mega standa. Þannig að ég held að við ættum svona að fara að dempa aðeins niður einhver fánastríð hérna á Íslandi. Ég held að við höfum margt annað og mikilvægara að hugsa um.“
Hinsegin Reykjavík Íslenski fáninn Þjóðkirkjan Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira