Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 14:59 Komugjald í heilsugæslu verður þúsund krónur í stað fimm hundruð áður frá 1. ágúst. Myndin er úr safni. Vísir/Egill Almennt komugjald í heilsugæslu verður tvöfalt hærra en áður í næsta mánuði og innheimt verður komugjald fyrir sjúkraþjálfun í byrjun september. Gjöldin eiga meðal annars að mæta miklum útgjaldaauka ríksins eftir samning sem var gerður við sjúkraþjálfara.
Komugjöld í heilsugæslu, sálfræðiþjónustu, leghálsskimanir og röntgenmyndatöku af brjóstum vegna krabbameinsleitar hækka úr 500 krónum í þúsund krónur 1. ágúst. Aldraðir, börn og öryrkjar greiða áfram ekkert komugjald í heilsugæslu. Þá hækkar komugjald í síðdegisvakt heilsugæslu úr 3.100 krónum í 3.500 krónur. Innheimt verður komugjald fyrir þjónustu í sjúkrabíl á vettvangi sem lýtur sömu reglum og gjöld í heilsugæslu. „Dæmi um slík tilvik eru sjúkrabílar sem staðsettir eru í Öræfum vegna fjarlægðar til næstu heilsugæslu og á tilfallandi útihátíðum. Gjaldið á ekki við þegar sjúkrabíll er kallaður til, en gjald vegna sjúkraflutnings verður óbreytt,“ segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. Borga alltaf gjaldið við komu til sjúkraþjálfara Mánuði síðar, 1. september, verða tekin upp ný komugjöld í ýmsa þjálfun, þar á meðal sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Almennt komugjald verður 1.500 krónur en þúsund krónur fyrir aldraða og fimm hundruð fyrir öryrkja. Yngri en átján ára greiða ekki komugjald. Komugjaldið verður ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og því alltaf það sama, óháð fjölda koma. Ekki hækkað vegna verðlagsþróunar í átján ár Ráðuneytið rökstyður hækkanir komugjalda í heilsugæslu með því að þau hafi ekki verið uppfærð vegna verðlags í átján ár. Gjöldin hafi lækkað í krónum talið. Varðandi sjúkraþjálfun segir ráðuneytið að útgjöld vegna hennar hafi aukist hratt og umfram áætlanir frá því að Sjúkratryggingar skrifuðu undir samning við Félag sjúkraþjálfara í maí árið 2024. Nú stefni í 3,4 milljarða króna halla á fjárlögum vegna sjúkraþjálfunar ef ekkert verði að gert. „Skýringar eru einkum þær að magn þjónustunnar hefur aukist mun meira en forsendur samningsins gerðu ráð fyrir, eða sem nemur um 7% umfram forsendur,“ segir í tilkynningunni.
Skattar, tollar og gjöld Heilbrigðismál Heilsugæsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira