„Dómararnir á HM eru ekki nógu góðir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 15:15 Thomas Tuchel var ekki alltaf sáttur með störf þriðja liðsins í leik Englands og Mexíkó. getty/Nick Potts Eftir sigur Englands á Mexíkó í sextán liða úrslitum HM í fótbolta sagði Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, að dómararnir á mótinu væru ekki nógu góðir.
England vann Mexíkó, 3-2, á hinum sögufræga Azteca-leikvangi í Mexíkóborg í nótt. Englendingar voru manni færri bróðurpartinn af seinni hálfleik eftir að Jarell Quansah fékk að líta rauða spjaldið á 54. mínútu. Staðan var þá 2-1, Englandi í vil, en bæði lið skoruðu mörk úr vítaspyrnum í kjölfarið. Þrátt fyrir mikla pressu Mexíkóa héldu tíu Englendingar út og fögnuðu sigri og sæti í átta liða úrslitum HM. Þar mæta þeir Norðmönnum. Í leikslok fór Tuchel ófögrum orðum um dómgæsluna á heimsmeistaramótinu. „Þetta er ekki nógu gott. Dómararnir eru ekki nógu góðir; fjórðu dómararnir eru ekki nógu góðir. Það er heila málið,“ sagði Tuchel. Raúl Jiménez minnkaði muninn í 3-2 með marki úr vítaspyrnu á 69. mínútu. Alireza Faghani dæmdi víti á Harry Kane fyrir brot á Brian Gutiérrez eftir að hafa skoðað atvikið á myndbandi. „Eru þetta klár og augljós mistök í vítinu? Alls ekki. Þeir sneru við stöðu þar sem hann dæmdi ekki einu sinni víti,“ sagði ósáttur Tuchel. Í umfjöllun BBC um leikinn sagði Joe Hart, fyrrverandi markvörður enska landsliðsins, að Faghani hefði komist að réttri niðurstöðu í báðum vítaspyrnunum sem hann dæmdi og þegar hann rak Quansah út af. Englendingar geta tryggt sér sæti í undanúrslitum HM með sigri á Norðmönnum í Miami á laugardaginn kemur.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Thomas Tuchel, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, segir að Jordan Henderson hafi meiðst illa á hendi í fagnaðarlátunum eftir sigur Englands á Mexíkó í sextán liða úrslitum á HM í nótt. 6. júlí 2026 08:31 Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Thomas Tuchel, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, sagði var í skýjunum eftir sigurinn á Mexíkó á Azteca-leikvanginum. Harry Kane sagði að allir leikmenn Englands væru hetjur. 6. júlí 2026 07:32 Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ ÍBV - Fram | Þjóðhátíðarleikur í Dalnum „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ Sjá meira
Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Thomas Tuchel, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, segir að Jordan Henderson hafi meiðst illa á hendi í fagnaðarlátunum eftir sigur Englands á Mexíkó í sextán liða úrslitum á HM í nótt. 6. júlí 2026 08:31
Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Thomas Tuchel, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, sagði var í skýjunum eftir sigurinn á Mexíkó á Azteca-leikvanginum. Harry Kane sagði að allir leikmenn Englands væru hetjur. 6. júlí 2026 07:32