Fjör á Seltjarnarnesi og Afturelding heldur toppsætinu Andri Broddason skrifar 3. júlí 2026 21:51 Afturelding heldur toppsætinu í Lengjudeildinni Pawel/Vísir Fjórir leikir voru spilaðir í Lengjudeild karla í kvöld. Afturelding náði að halda toppsætinu á meðan Ægi mistókst að koma sér upp úr fallsæti.
Á Seltjarnarnesi tók Grótta á móti HK þar sem Grótta byrjaði leikinn sterkt. Á fjórðu mínútu leiksins skoraði Andri Freyr Jónasson eftir frábæra fyrirgjöf frá Tristani Frey Ingólfssyni. Um fimmtán mínútum seinna bætti Andri Freyr við öðru marki og Grótta var komin með tveggja marka forystu. Eftir markið keyrði HK í sókn og fékk vítaspyrnu en Guðmundur Rafn Ingason í marki Gróttu varði spyrnuna. Nokkrum mínútum seinna bæta HK-ingar upp fyrir að klúðra vítinu þegar Aron Kristófer Lárusson keyrir í gegnum vörn Gróttu og skorar. Grótta náði að halda forystunni í hálfleik en í seinni hálfleik færðist hiti í leikinn. Viktor Helgi Benediktsson hjá HK fékk beint rautt spjald eftir grófa tæklingu á Elmar Frey Haukssyni. Caden Robert McLagan var ekki sáttur með tæklinguna hjá Viktori Helga og keyrði hann niður. Við það fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt. Þetta var síðasta merka atvikið í leiknum og endaði leikurinn með 2-1 sigri Gróttu þar sem bæði liðin voru manni færri. Afturelding náði að vinna ÍR í frekar tíðindalitlum leik. Afturelding fékk víti strax á annarri mínútu eftir að brotið var á Joacim Holtan. Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar, steig upp á punktinn og skoraði örugglega. Lítið annað merkilegt gerðist í leiknum en Afturelding náði með sigrinum að halda toppsæti deildarinnar. ÍR situr með súrt ennið í níunda sæti deildarinnar, fjórum stigum frá falli. Þróttur fór í heimsókn til Njarðvíkur en sú heimsókn fór ekki að óskum Þróttara. Fyrirliði Þróttar fauk út af vellinum með rautt spjald eftir að hafa tekið tveggja fóta tæklingu á Aron Einarsson. Njarðvík náði að nýta sér að vera manni fleiri og skoraði Oumar Diouck fyrir Njarðvík á 73. mínútu. Eftir að Þróttarar urðu manni færri var Njarðvík búið að vera betra liðið á vellinum. Þetta reyndist vera lokamark leiksins og súrt tap fyrir Þrótt sem stendur nú í þriðja sæti deildarinnar. Í Þorlákshöfn var kaflaskiptur leikur þar sem Ægir tók á móti Fylki. Mikið var skorað í fyrri hálfleik en lítið gerðist í þeim seinni. Fylkir byrjaði á því að skora tvö mörk með í beit á tólftu og fjórtándu mínútu. Á 37. mínútu kemur annar tveggja marka kafli hjá Fylki þegar Guðmundur Tyrfingsson og Arnór Breki Ásþórsson bæta við tveimur mörkum í viðbót. Undir lok nær Jordan Adayemo að minnka muninn og endaði fyrri hálfleikur 4-1. Í byrjun seinni hálfleiks bætir Jordan Adayemo við öðru marki og virðist Ægir ætla að koma til baka í leiknum. Það gerðist hins vegar ekki og varð þetta síðasta mark leiksins. Fylkir er komið í annað sæti deildarinnar, aðeins stigi á eftir toppliði Aftureldingar. Ægir situr enn þá fast í fallsæti, aðeins stigi á undan botnliði Völsungs.
Íslenski boltinn Lengjudeild karla Afturelding Grótta Ægir Fylkir ÍR HK UMF Njarðvík Þróttur Reykjavík Mest lesið Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Fótbolti Hvernig á að leysa varnarleikinn? Fótbolti Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Fótbolti Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Myndasyrpa: Áritanir og æfing í Laugardalnum Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Öll spjót beinast að Írum og Heimi Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Sjá meira