Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júlí 2026 16:50 Kristján Loftsson fylgist með skurði á langreyðum í Hvalfirði. Vísir/Vilhelm Forstjóri Hvals hf. hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn um það hvort eftirlitsskýrslur varðandi hvalveiði fyrirtækisins hafi verið afhentar þriðja aðila. Hann telur aðgerðarsinna á skipinu Bandero hafa nýtt skýrslurnar sem ógni öryggi starfsmanna Hvals og geri fyrirtækinu erfitt fyrir um veiðar á gjöfulum miðum. Kristján Loftsson, sem hefur lítið sem ekkert tjáð sig opinberlega síðan veiðivertíð hófst, óskar jafnframt skýringa á því hvers vegna Hval hf. hafi ekki verið gefinn kostur á því að tjá sig um slíkar beiðnir. Á eftirlitsskýrslunum getur að líta nákvæma staðsetningu veiddra langreyða en Kristján segist hafa rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipverjum Bandero. „Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf. Hefði Hvalur hf. að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar,“ skrifar Kristján í tölvupósti til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur forstjóra MAST sem hann sendi einnig afrit af á fjölmiðla. Hann telur að með þessu hafi MAST stefnt öryggi hvalveiðimanna í hættu en segir einnig að fjárhagslegt tjón hafi hlotist vegna þess að hvalveiðiskipin Hvalur 8 og 9 þurftu að leita á mið þar sem sé minna af hval. „Þar sem MAST kýs ítrekað að reka stjórnsýslu sína gegn Hval hf. í fjölmiðlum er best að hafa samskiptin milliliðalaust og því cc-a ég valda fjölmiðla í póst þennan og óska eftir því að þeir séu hafðir með í samskiptunum,“ skrifar hann. Byggja kröfuna á skýrslunum Meðal þess sem fjallað hefur verið í fjölmiðlum er hálftíma langt dauðastríð en samkvæmt skýrslu MAST var ein langreyður skotinn fjórum sinnum þann 22. júní. Þá kemur einnig fram í sameiginlegri tilkynningu Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavina – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð að krafa þeirra um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust byggi á skýrslum MAST. Frá þessu var greint á Vísi þann 2. júlí. Krafan, sem var send Matvælastofnun, byggir á sex eftirlitsskýrslum MAST dagsettum 22.–25. júní 2026, sem samtökin fengu afhentar á grundvelli upplýsingalaga. Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti. Hér að neðan má lesa tölvupóstinn sem Kristján sendi frá sér í heild sinni. Sæl Hrönn Ólína, Ég fyrir hönd Hvals hf. óska eftir upplýsingum um hvort þið hafið afhent eftirlitsskýrslur með velferð dýra við hvalveiðar og þá hverjum? Í því sambandi óska ég jafnframt sérstakra skýringa á af hverju Hval hf. var þá ekki gefinn kostur á að tjá sig um slíkar beiðnir? Í þessu sambandi leyfi ég mér að vísa til hæstaréttardóms í svokölluðu Brúneggjamáli, sem varðar jú ykkar stofnun. Þar sagði Hæstiréttur: Hér að framan var komist að þeirri niðurstöðu að Matvælastofnun hefði verið heimilt að afhenda gögn um Brúnegg ehf. Til þess er þó að líta að fjöldi gagna með ítarlegum upplýsingum um rekstur fyrirtækisins um nokkurra ára skeið var afhentur á tímabilinu maí til nóvember 2016. Höfðu gögnin meðal annars að geyma myndefni sem fyrirsvarsmönnum Brúneggja ehf. var ekki kunnugt um. Má því fallast á með aðaláfrýjendum að það hefði samrýmst góðri stjórnsýsluframkvæmd að óska eftir afstöðu fyrirtækisins samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laganna. Þegar atvik málsins eru virt í heild verður hins vegar ekki séð að slík álitsumleitan hefði nokkru breytt um skyldu til afhendingu gagnanna. Er þá einkum höfð í huga skylda stofnunarinnar til að afhenda gögnin á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laganna sem áður er lýst. Sá annmarki á málsmeðferð Matvælastofnunar sem hér um ræðir er því án þýðingar fyrir sakarefni málsins. Á eftirlitsskýrslunum getur að líta, eins og þér er fullkunnugt, nákvæma staðsetningu (hnit) veiddra langreyða. Út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig við veiðar. Hvalur hf. hefur rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipinu Bandero. Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf. Hefði Hvalur hf. að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar. Framangreint hefur jafnframt leitt til þess að Hvalur hf. hefur stefnt skipum sínum annað þar sem veiðar eru ekki eins gjöfular eins og er með tilheyrandi tjóni á viðskiptahagsmunum fyrirtækisins. Þar sem MAST kýs ítrekað að reka stjórnsýslu sína gegn Hval hf. í fjölmiðlum er best að hafa samskiptin milliliðalaust og því cc-a ég valda fjölmiðla í póst þennan og óska eftir því að þeir séu hafðir með í samskiptunum. Kveðja, Kristján Fréttin hefur verið uppfærð. Hvalir Hvalveiðar Matvælastofnun Tengdar fréttir Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023. 22. júní 2026 11:14 „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. 27. júní 2026 13:43 Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns. 19. júní 2026 19:03 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira
Kristján Loftsson, sem hefur lítið sem ekkert tjáð sig opinberlega síðan veiðivertíð hófst, óskar jafnframt skýringa á því hvers vegna Hval hf. hafi ekki verið gefinn kostur á því að tjá sig um slíkar beiðnir. Á eftirlitsskýrslunum getur að líta nákvæma staðsetningu veiddra langreyða en Kristján segist hafa rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipverjum Bandero. „Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf. Hefði Hvalur hf. að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar,“ skrifar Kristján í tölvupósti til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur forstjóra MAST sem hann sendi einnig afrit af á fjölmiðla. Hann telur að með þessu hafi MAST stefnt öryggi hvalveiðimanna í hættu en segir einnig að fjárhagslegt tjón hafi hlotist vegna þess að hvalveiðiskipin Hvalur 8 og 9 þurftu að leita á mið þar sem sé minna af hval. „Þar sem MAST kýs ítrekað að reka stjórnsýslu sína gegn Hval hf. í fjölmiðlum er best að hafa samskiptin milliliðalaust og því cc-a ég valda fjölmiðla í póst þennan og óska eftir því að þeir séu hafðir með í samskiptunum,“ skrifar hann. Byggja kröfuna á skýrslunum Meðal þess sem fjallað hefur verið í fjölmiðlum er hálftíma langt dauðastríð en samkvæmt skýrslu MAST var ein langreyður skotinn fjórum sinnum þann 22. júní. Þá kemur einnig fram í sameiginlegri tilkynningu Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavina – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð að krafa þeirra um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust byggi á skýrslum MAST. Frá þessu var greint á Vísi þann 2. júlí. Krafan, sem var send Matvælastofnun, byggir á sex eftirlitsskýrslum MAST dagsettum 22.–25. júní 2026, sem samtökin fengu afhentar á grundvelli upplýsingalaga. Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti. Hér að neðan má lesa tölvupóstinn sem Kristján sendi frá sér í heild sinni. Sæl Hrönn Ólína, Ég fyrir hönd Hvals hf. óska eftir upplýsingum um hvort þið hafið afhent eftirlitsskýrslur með velferð dýra við hvalveiðar og þá hverjum? Í því sambandi óska ég jafnframt sérstakra skýringa á af hverju Hval hf. var þá ekki gefinn kostur á að tjá sig um slíkar beiðnir? Í þessu sambandi leyfi ég mér að vísa til hæstaréttardóms í svokölluðu Brúneggjamáli, sem varðar jú ykkar stofnun. Þar sagði Hæstiréttur: Hér að framan var komist að þeirri niðurstöðu að Matvælastofnun hefði verið heimilt að afhenda gögn um Brúnegg ehf. Til þess er þó að líta að fjöldi gagna með ítarlegum upplýsingum um rekstur fyrirtækisins um nokkurra ára skeið var afhentur á tímabilinu maí til nóvember 2016. Höfðu gögnin meðal annars að geyma myndefni sem fyrirsvarsmönnum Brúneggja ehf. var ekki kunnugt um. Má því fallast á með aðaláfrýjendum að það hefði samrýmst góðri stjórnsýsluframkvæmd að óska eftir afstöðu fyrirtækisins samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laganna. Þegar atvik málsins eru virt í heild verður hins vegar ekki séð að slík álitsumleitan hefði nokkru breytt um skyldu til afhendingu gagnanna. Er þá einkum höfð í huga skylda stofnunarinnar til að afhenda gögnin á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laganna sem áður er lýst. Sá annmarki á málsmeðferð Matvælastofnunar sem hér um ræðir er því án þýðingar fyrir sakarefni málsins. Á eftirlitsskýrslunum getur að líta, eins og þér er fullkunnugt, nákvæma staðsetningu (hnit) veiddra langreyða. Út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig við veiðar. Hvalur hf. hefur rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipinu Bandero. Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf. Hefði Hvalur hf. að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar. Framangreint hefur jafnframt leitt til þess að Hvalur hf. hefur stefnt skipum sínum annað þar sem veiðar eru ekki eins gjöfular eins og er með tilheyrandi tjóni á viðskiptahagsmunum fyrirtækisins. Þar sem MAST kýs ítrekað að reka stjórnsýslu sína gegn Hval hf. í fjölmiðlum er best að hafa samskiptin milliliðalaust og því cc-a ég valda fjölmiðla í póst þennan og óska eftir því að þeir séu hafðir með í samskiptunum. Kveðja, Kristján Fréttin hefur verið uppfærð.
Sæl Hrönn Ólína, Ég fyrir hönd Hvals hf. óska eftir upplýsingum um hvort þið hafið afhent eftirlitsskýrslur með velferð dýra við hvalveiðar og þá hverjum? Í því sambandi óska ég jafnframt sérstakra skýringa á af hverju Hval hf. var þá ekki gefinn kostur á að tjá sig um slíkar beiðnir? Í þessu sambandi leyfi ég mér að vísa til hæstaréttardóms í svokölluðu Brúneggjamáli, sem varðar jú ykkar stofnun. Þar sagði Hæstiréttur: Hér að framan var komist að þeirri niðurstöðu að Matvælastofnun hefði verið heimilt að afhenda gögn um Brúnegg ehf. Til þess er þó að líta að fjöldi gagna með ítarlegum upplýsingum um rekstur fyrirtækisins um nokkurra ára skeið var afhentur á tímabilinu maí til nóvember 2016. Höfðu gögnin meðal annars að geyma myndefni sem fyrirsvarsmönnum Brúneggja ehf. var ekki kunnugt um. Má því fallast á með aðaláfrýjendum að það hefði samrýmst góðri stjórnsýsluframkvæmd að óska eftir afstöðu fyrirtækisins samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laganna. Þegar atvik málsins eru virt í heild verður hins vegar ekki séð að slík álitsumleitan hefði nokkru breytt um skyldu til afhendingu gagnanna. Er þá einkum höfð í huga skylda stofnunarinnar til að afhenda gögnin á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laganna sem áður er lýst. Sá annmarki á málsmeðferð Matvælastofnunar sem hér um ræðir er því án þýðingar fyrir sakarefni málsins. Á eftirlitsskýrslunum getur að líta, eins og þér er fullkunnugt, nákvæma staðsetningu (hnit) veiddra langreyða. Út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig við veiðar. Hvalur hf. hefur rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipinu Bandero. Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf. Hefði Hvalur hf. að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar. Framangreint hefur jafnframt leitt til þess að Hvalur hf. hefur stefnt skipum sínum annað þar sem veiðar eru ekki eins gjöfular eins og er með tilheyrandi tjóni á viðskiptahagsmunum fyrirtækisins. Þar sem MAST kýs ítrekað að reka stjórnsýslu sína gegn Hval hf. í fjölmiðlum er best að hafa samskiptin milliliðalaust og því cc-a ég valda fjölmiðla í póst þennan og óska eftir því að þeir séu hafðir með í samskiptunum. Kveðja, Kristján
Hvalir Hvalveiðar Matvælastofnun Tengdar fréttir Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023. 22. júní 2026 11:14 „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. 27. júní 2026 13:43 Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns. 19. júní 2026 19:03 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira
Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023. 22. júní 2026 11:14
„Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. 27. júní 2026 13:43
Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns. 19. júní 2026 19:03