Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar 2. júlí 2026 15:00 Við hjá Barnaheillum erum í þeirri forréttindastöðu að fá að starfa í þágu barna og vinna þétt með hópi ungmenna innan Ungheilla – ungmennaráðs Barnaheilla. Sem rödd unga fólksins innan Barnaheilla hafa þau áhrif á starf samtakanna og sterkan vilja til að láta til sín taka í mikilvægum málum sem snerta þau í samfélaginu. Oft er talað um að ungt fólk hafi ekki áhuga á að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og hafa áhrif á það hvernig samfélagið þróast. Það er hinsvegar öflugur hópur sem vinnur innan Ungheilla, og er hluti af breiðfylkingu barna og ungmenna sem beitir sér innan ungmennaráða vítt og breitt um samfélagið til að breyta því. Þetta gera þau af hugsjón og af því að þau brenna fyrir því að bæta hag ungs fólks hér og nú. Öflugt málsvarastarf Ungheilla – ungmennaráðs Barnaheilla Þau læra einnig lýðræðisleg vinnubrögð með því að vinna saman í hópi við að móta hugmyndir sínar og koma þeim á framfæri. Á liðnu starfsári hafa Ungheill ítrekað beint ábendingum til áhrifafólks í ráðuneytum og á Alþingi, með umsögnum, mætt á nefndarfundi á Alþingi og farið í viðtöl í fjölmiðlun. Þetta hafa þau gert ein og sér og einnig með fulltrúum annarra ungmennasamtaka. Þetta er mikilvæg reynsla þar sem reynir á samráð og að finna mismunandi skoðunum sameiginlegan farveg. Fulltrúar Ungheilla hafa til að mynda skilað þremur umsögnum um hugmyndir um símabann á ólíkum stigum málsins, mætt á fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, á vinnufund mennta- og barnamálaráðuneytis og nú síðast í viðtal í morgunútvarp Rásar 2. Þar vöktu þau athygli á því að ný reglugerð ráðherra geri ráð fyrir algjöru tækjabanni á skólatíma, og lýstu vonbrigðum sínum með að ekki hafi verið tekið tillit til eindreginna óska ungmennanna sem sótti vinnufundinn um meiri sveigjanleika með notkun síma í skólum og aukna fræðslu um tækjafíkn. Þau upplifðu að þó að þau hefðu verið kölluð til ráðgjafar, hefðu þau hefðu ekki fengið raunverulegt sæti við borðið til að móta sameiginlega reglugerð með stjórnvöldum – reglugerð sem tæki tillit til sjónarmiða beggja. Á þau hefði einfaldlega ekki verið hlustað. Það er mikilvægt að börn eigi sinn vettvang í samfélaginu þar sem þau geta sagt okkur frá sínum veruleika og haft áhrif á þróun mála sem snerta þau beint. Við hjá Barnaheillum erum stolt af ungmennunum okkar sem hafa í auknum mæli nýtt sér þær formlegu leiðir sem hægt er að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda og verið óhrædd við að vekja athygli á afstöðu sinni. Ráðafólk þarf að hlusta og taka mark á ungmennum Það eru því vonbrigði að mennta- og barnamálaráðherra skuli bregðast við upplifun fulltrúa Ungheilla með því að segja þau of neikvæð og ýja að því að engin nauðsyn sé að hafa við þau samráð, heldur „koma bara áfram með reglugerðir eins og ráðherrar eru vanir að gera án þess að tala við kóng eða prest,“ líkt og haft var eftir ráðherra í viðtali á RÚV. Við viljum minna á að stjórnvöld eru bundin af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en 12. grein hans segir að börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra – og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á þeim. Við vonum að áfram verði haft samráð við ungmenni þessa lands sem vilja hafa áhrif á mál sem þau varða. Það er mikilvægt að draga ekki úr börnum að tjá sig um jafnvel umdeild málefni. Við skulum heldur hrósa þeim fyrir kjark og þor fyrir að láta rödd sína heyrast. Fyrir okkur fullorðna fólkið er mikilvægt að æfa okkur í að hlusta og taka mark á þeim, ekki síst þegar við erum ósammála. Og við getum öll þurft að skipta um skoðun til að taka réttmætt tillit til afstöðu barnanna. Höfundur er framkvæmdastjóri Barnaheilla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tótla I. Sæmundsdóttir Börn og uppeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar