Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 07:32 Pape Gueye var tekinn af velli á 67. mínútu í stöðunni 2-0 yfir og eftir það hrundi leikur liðsins. Getty/Emilee Chinn Grátlegt tap gegn Belgíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gærkvöldi var mörgum Senegölum erfitt og fyrir miðjustjörnuna Pape Gueye var þetta síðasti landsleikurinn í bili. Hann neitar nú að spila undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara, Pape Thiaw. „
Ég mun tjá mig nánar um brottför okkar úr mótinu síðar, en ég get þegar tilkynnt að á meðan þetta þjálfarateymi stýrir landsliðinu mun ég taka mér hlé frá landsliðinu, skrifar Pape Gueye á Instagram-síðu sína, eftir að hafa byrjað alla leiki á HM og skorað tvö mörk. Algjört brjálæði braust út í herbúðum senegalska karlalandsliðsins í fótbolta eftir leik en strax í kjölfar hins sársaukafulla 3-2 taps í framlengingu, þar sem Senegalar misstu niður 2-0 forystu, kom leikmaður Villarreal fjölmiðlum á óvart með þessari yfirlýsingu. 🚨🇸🇳 Pape Gueye: “I will take a break from the national team until THIS coaching staff remains in charge”. ⚠️ pic.twitter.com/FeRW2PnsBW— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 2, 2026 Andrúmsloftið í búningsklefanum varð eitrað eftir að leik lauk og svo virðist sem hinn 27 ára gamli miðjumaður hafi fundið þörf hjá sér til að segja sína skoðun við þá sem standa honum og stjórn liðsins næst. Senegal hafði þægilega 2-0 forystu með mörkum frá Habib Diarra og Ismaïla Sarr, en vendipunkturinn kom með röð taktískra skiptinga sem aðalþjálfarinn, Pape Thiaw, gerði. Pape Gueye var sjálfur tekinn af velli á 67. mínútu fyrir Lamine Camara og varnarstöðugleiki miðjunnar hrundi, sem gerði Romelu Lukaku og Youri Tielemans kleift að leiða Evrópumennina til sögulegrar endurkomu seint í leiknum. Stór hluti reyndra leikmanna í búningsklefanum virðist hafa tekið undir ákvörðun Villarreal-stjörnunnar og beitir nú senegalska knattspyrnusambandið gríðarlegum þrýstingi um að taka skjóta ákvörðun um framtíð núverandi stjórnkerfis fyrir næsta landsleikjahlé. Juste à sa réaction au moment où il est sorti j’ai compris que y’avait un truc chelou pic.twitter.com/EvEDi3CaTw https://t.co/hfSXJ6PPb3— 𝙏𝙤𝙙𝙞𝙗𝙚𝙖𝙪 🇸🇳 (@La_Melooow) July 2, 2026
HM 2026 í fótbolta Senegal Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira