Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2026 22:17 Youri Tielemans lætur Leandro Trossard heyra það í vatnspásunni í seinni hálfleik í leiknum gegn Senegal. Undir lok hans unnu þeir vel saman. getty/Jared C. Tilton Belgar knúðu fram framlengingu í leiknum gegn Senegölum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Allt virtist í hers höndum hjá belgíska liðinu en leikmenn sem rifust bjuggu til jöfnunarmarkið.
Ekki blés byrlega fyrir Belgíu í leiknum gegn Senegal í Seattle í kvöld. Habib Diarra kom senegalska liðinu yfir á 24. mínútu og í upphafi seinni hálfleiks tvöfaldaði Ismaïla Sarr forskotið. Rudi Garcia, þjálfari Belgíu, kom svo mörgum á óvart þegar hann tók Kevin De Bruyne og Jérémy Doku af velli skömmu eftir að Senegal komst í 0-2. Þegar leikurinn var svo stöðvaður um miðbik seinni hálfleiks, til að leikmenn gætu fengið sér hressingu, hnakkrifust þeir Youri Tielemans og Leandro Trossard. Allt virtist því ganga Belgum í mót. Þeir gáfust þó ekki upp. Romelu Lukaku minnkaði muninn í 1-2 á 86. mínútu og þremur mínútum síðar var staðan orðin jöfn, 2-2. Tielemans skallaði þá boltann í netið eftir fyrirgjöf frá engum öðrum en Trossard, manninum sem hann reifst við tuttugu mínútum áður. Allir vinir.getty/Emilee Chinn Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Hægt er að fylgjast með gangi mála í leiknum í beinni textalýsingu á Vísi, eða hér fyrir neðan. Sigurvegarinn í leiknum mætir annað hvort Bandaríkjunum eða Bosníu í sextán liða úrslitum 6. júlí.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Fleiri fréttir Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Sjá meira