Weinstein á spítala eftir hjartabilun Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júlí 2026 17:18 Harvey Weinstein hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota, var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2022 og bíður enn réttarhalda í einu máli. Getty/Pool Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein, sem afplánar sextán ára fangelsisdóm í fangelsi á Rikers-eyju fyrir fjölda kynferðisbrota, hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna hjartabilunar af völdum lungnabólgu.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá veikindum Weinstein fyrr í dag. Samkvæmt miðlinum var Weinstein lagður inn á Bellevue-spítala í Manhattan fyrir tveimur vikum síðan eftir hjartabilun af völdum lungnabólgu. Fulltrúi Weinstein sagði við bransamiðilinn Deadline að Weinstein hafi glímt við „alvarlega öndunarerfiðleika“ og væri að jafna sig á spítalanum þar sem hann verði allavega næstu vikurnar. Hann sé kominn á sýklalyf vegna lungnabólgunnar en er ekki búinn að ná sér að fullu. Weinstein hefur glímt við alls konar veikindi síðustu ár, þar á meðal langvinnt kyrningahvítblæði, lungnabólgu og Covid-19. Tugir mála yfir margra ára skeið Tugir kvenna stigu fram í kjölfar MeToo-hreyfingarinnar árið 2017 og sökuðu Weinstein um kynferðisofbeldi sem átti sér stað yfir margra áratuga skeið. Weinstein var árið 2020 dæmdur í 23 ára fangelsi í New York fyrir að nauðga Jessicu Mann. Þeirri sakfellingu var síðan hnekkt og málið tekið fyrir í tvígang til viðbótar án þess að kviðdómur kæmist að niðurstöðu. Í síðustu viku ákváðu saksóknarar í New York að fella niður ákæruna á hendur kvikmyndaframleiðandanum í samráði við Mann. Sjá einnig: Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Aðrar sakfellingar Weinsteins standa enn, þar á meðal sextán ára dómur sem hann hlaut í Kaliforníu árið 2022 og hann hefur áfrýjað. Jafnframt bíður hann réttarhalda í öðru kynferðisbrotamáli sem fer fyrir dómara í september næstkomandi.
Mál Harvey Weinstein Bandaríkin Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur marga fjöruna sopið á sinni lífsleið. Cara er fædd árið 1992 og tilheyrir breskri yfirstéttarfjölskyldu þar sem allt leit vel út á yfirborðinu en innan veggja heimilisins voru mikil átök. Cara opnaði sig upp á gátt í hlaðvarpinu „Call her daddy“ á dögunum og leyndi engu. 9. júní 2026 11:32 Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Leikkonan Judi Dench hefur óvænt komið framleiðandanum Harvey Weinstein til varnar og segir hann hafa þolað nóg. Hún segist hafa mikla samúð með fórnarlömbum hans og hafi verið heppin að lenda aldrei í honum í þeim tíu myndum sem þau gerðu sama. Weinstein hefur afplánað um fimm ár af 39 ára dómi. 9. desember 2025 12:11 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira
Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur marga fjöruna sopið á sinni lífsleið. Cara er fædd árið 1992 og tilheyrir breskri yfirstéttarfjölskyldu þar sem allt leit vel út á yfirborðinu en innan veggja heimilisins voru mikil átök. Cara opnaði sig upp á gátt í hlaðvarpinu „Call her daddy“ á dögunum og leyndi engu. 9. júní 2026 11:32
Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Leikkonan Judi Dench hefur óvænt komið framleiðandanum Harvey Weinstein til varnar og segir hann hafa þolað nóg. Hún segist hafa mikla samúð með fórnarlömbum hans og hafi verið heppin að lenda aldrei í honum í þeim tíu myndum sem þau gerðu sama. Weinstein hefur afplánað um fimm ár af 39 ára dómi. 9. desember 2025 12:11