Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2026 08:33 Erling Braut Haaland fagnar með víkingahjálminn í leikslok. Hann hefur skorað fimm mörk í aðeins þremur leikjum sínum í keppninni. Getty/Julian Finney Erling Braut Haaland tryggði Norðmönnum sigur á Fílabeinsströndinni í 32 liða úrslitum HM og nú er það Brasilía sem bíður í sextán liða úrslitunum á sunnudag.
Noregi hafði aldrei áður tekist að komast áfram í útsláttarkeppni. „Þetta er fáránlegt en þetta er ferðalag sem er gaman að vera hluti af. Þetta er stórt,“ sagði Haaland eftir leik en ofurstjarnan viðurkenndi að það hafi verið gríðarleg raun að sigra Fílabeinsströndina. „Ég var orðinn dauðþreyttur, svo ég hugsaði „ég nenni ekki framlengingu, svo við verðum að skora,“ sagði Haaland um sigurmarkið hans í lok leiks. Þetta var hans fimmta mark í aðeins þremur leikjum í hans fyrstu heimsmeistarakeppni. „Þetta er sjúkt. 28 ár síðan síðast. Ég hef bent á það nokkrum sinnum. Þetta er stórt, þetta er fáránlegt. Það er gaman að sjá að þetta skiptir allan Noreg svona miklu máli. Ég held að þetta muni breyta Noregi til frambúðar,“ sagði Haaland. Haaland hefur nú skorað í þrettán landsleikjum í röð og alls sextíu mörk í aðeins 53 landsleikjum. Brasilía er því næsti andstæðingur. Þeir unnu Japan 2-1 í dramatískum 32-liða úrslitum. „Þetta er út í hött. Að spila á móti Brasilíu í 16-liða úrslitum er algjörlega fáránlegt, svo það er bara að vera glaður og segja að þetta sé ferðalag, svo þetta er algjörlega fáránlegt,“ sagði Haaland en hvað heldur hann um möguleikana þar? „Mjög litlir,“ sagði Haaland, fljótur að setja alla pressuna á Brasilíumenn. 13 - Erling Haaland has scored in each of his last 13 competitive internationals for Norway, scoring 25 goals in this run.Inevitable. pic.twitter.com/q4Vcurxy6n— OptaJoe (@OptaJoe) June 30, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Fleiri fréttir Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Sjá meira