„Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Jakob Bjarnar skrifar 29. júní 2026 15:22 Guðlaugur Þór segir af og frá að Já-arar séu upp til hópa málefnalegir meðan Nei-jarar séu vart húsum hæfir. vísir/Lýður Valberg Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafnar því alfarið að þeir sem aðhyllast „Já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu málefnalegir en þeir sem tali fyrir „Nei-i“ séu óalandi og óferjandi rugludallar.
Þetta segir Guðlaugur Þór í tengslum við frétt Vísis frá því fyrr í dag þar sem greint var frá því að Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar hafi mátt þola holskeflu ómálefnalegra ummæla í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Guðlaugur hefur, líkt og Pawel, verið áberandi í umræðunni um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en þeir Pawel eru á öndverðum meiði. „Ég er búinn að henda út svona hundrað Já-urum. Bara búinn að blokka þá sem segja að ég sé fífl og hálfviti og þiggi mútur. Það er varla einn ESB-sinni sem svarar efnislega,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við Vísi. Guðlýgur sem gerir ekki greinarmun á sannleika og lygi Umræða um umræðuna hefur verið áberandi eftir tilkomu samfélagsmiðla. Þegar fólk skiptist á skoðunum eru fljótlega mættir menn sem vilja skipta sér af því að aðrir séu að skiptast á skoðunum og láta vita af því að þeim finnist umræðan heimskuleg og leiðinleg. Vissulega getur slík „meta-umræða“ farið í spíral en nú kveður rammt að þegar þjóðaratkvæðagreiðslan er annars vegar. Það er eins og stór hluti þjóðarinnar hafi beinlínis gengið af göflunum. Að sögn Guðlaugs Þórs hafa allir þeir sem hafa lagt orð í belg, svo sem Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur, fengið að kenna á þessum vanstilltu þátttakendum „umræðunnar“. Vísir tók stikkprufu á síðu Guðlaugs og þrátt fyrir að hann sé búinn að hreinsa til hjá sér þurfti ekki að leita lengi eftir ummælum sem mega heita vafasöm. Og hér er góður bútur. Athuga að þessi prufa er afar handahófskennd, þetta er holskefla. „Eins og það er stórkostlegt að hafa samfélagsmiðla, að taka umræðuna og skiptast á skoðunum, þá er ekki hægt að eiga orðaskipti við fólk sem kallar þig öllum illum nöfnum og lýgur upp á þig. Ég mun áfram vera mjög virkur á samfélagsmiðlum en ég frábið mér það að Já-arnir séu upp til hópa málefnalegir en Nei-jarar ekki, það stenst enga skoðun.“ Enginn hagnist á þessum ofsa Guðlaugur Þór segir ljóst að enginn hagnist á slíkum ofsa. „Við hljótum að geta haft skoðanaskipti um þessi og önnur mál án þess að ganga fram með þessum hætti. Guðlaugur Þór segir algerlega fyrirliggjandi að þessi umræðuvenja sé ekki að gera neinum greiða og hún fæli frá ýmsa þá sem hafa eitt og annað gagnlegt til málanna að leggja.vísir/lýður valberg Ég var bara að tala við manneskju sem hefur ýmislegt málefnalegt og gagnlegt til málanna að leggja. Það væri styrkur ef hún væri meira áberandi í þjóðfélagsumræðunni. Hún sagði að ef maður færi þarna inn hellist viðbjóðurinn yfir mann.“ Guðlaugur Þór segir ljóst að þetta dragi úr þátttöku í umræðu sem sé mikilvæg. „Það er jákvætt ef fólk er virkt í þjóðfélagsumræðu. Áður en samfélagsmiðlar komu til, ef fólk hefði tjáð sig með þeim hætti og það gerir nú, ættu menn ekki orð. Svona segir maður ekki um annað fólk. Þetta er kúltúr sem þjóðin mun ekki hagnast á.“
Samfélagsmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Innlent Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Fleiri fréttir Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Sjá meira