Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 09:57 Lionel Messi og félagar í Argentína ættu að eiga greiða leið í sextán liða úrslitin á HM. getty/Pablo Morano Riðlakeppninni á heimsmeistaramótinu í fótbolta 2026 er lokið og nú liggur fyrir hvaða lið mætast í 32-liða úrslitum keppninnar. Argentínumenn og Englendingar virðast hafa dottið í lukkupottinn. Efstu tvö liðin í riðlunum tólf á HM komust áfram í 32-liða úrslit auk þeirra átta liða sem voru með bestan árangur í 3. sæti þeirra. Eftir jöfnunarmark Austurríkis á elleftu stundu var ljóst að Íran yrði eitt af hinum fjórum óheppnu 3. sætis-liðum. Sömu sögu er að segja af Suður-Kóreu, Skotlandi og Úrúgvæ. England vann sinn riðil á HM og mætir Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum mótsins. Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu mega einnig vel við una en þeir mæta Grænhöfðaeyjum sem komust áfram upp úr riðlakeppninni á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Útsláttarkeppnin hefst í kvöld þegar ein af heimaþjóðunum, Kanada, mætir Suður-Afríku. Hinar heimaþjóðirnar, Bandaríkin og Mexíkó, mæta Bosníu og Ekvador. Brasilía og Japan eigast við og Holland og Marokkó leiða saman hesta sína. Silfurlið síðasta heimsmeistaramóts og sigurvegararnir frá 2018, Frakkland, mæta Svíþjóð. 32-liða úrslitin á HM 28. júní, kl. 19:00: Suður-Afríka - Kanada 29. júní, kl. 17:00: Brasilía - Japan 29. júní, kl. 20:30: Þýskaland - Paragvæ 30. júní, 01:00: Holland - Marokkó 30. júní, kl. 17:00: Fílabeinsströndin - Noregur 30. júní, kl. 21:00: Frakkland - Svíþjóð 1. júlí, kl. 01:00: Mexíkó - Ekvador 1. júlí, kl. 16:00: England - Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 1. júlí, kl. 20:00: Belgía - Senegal 2. júlí, kl. 00:00: Bandaríkin - Bosnía 2. júlí, kl. 19:00: Spánn - Austurríki 2. júlí, kl. 23:00: Portúgal - Króatía 3. júlí, kl. 03:00: Sviss - Alsír 3. júlí, kl. 18:00: Ástralía - Egyptaland 3. júlí, kl. 22:00: Argentína - Grænhöfðaeyjar 4. júlí, kl. 01:30: Kólumbía - Gana Sem fyrr sagði hefjast 32-liða úrslitin með leik Kanada og Suður-Afríku í kvöld. Þeim lýkur á föstudaginn kemur. Sextán liða úrslitin hefjast með tveimur leikjum á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí. HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira
Efstu tvö liðin í riðlunum tólf á HM komust áfram í 32-liða úrslit auk þeirra átta liða sem voru með bestan árangur í 3. sæti þeirra. Eftir jöfnunarmark Austurríkis á elleftu stundu var ljóst að Íran yrði eitt af hinum fjórum óheppnu 3. sætis-liðum. Sömu sögu er að segja af Suður-Kóreu, Skotlandi og Úrúgvæ. England vann sinn riðil á HM og mætir Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum mótsins. Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu mega einnig vel við una en þeir mæta Grænhöfðaeyjum sem komust áfram upp úr riðlakeppninni á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Útsláttarkeppnin hefst í kvöld þegar ein af heimaþjóðunum, Kanada, mætir Suður-Afríku. Hinar heimaþjóðirnar, Bandaríkin og Mexíkó, mæta Bosníu og Ekvador. Brasilía og Japan eigast við og Holland og Marokkó leiða saman hesta sína. Silfurlið síðasta heimsmeistaramóts og sigurvegararnir frá 2018, Frakkland, mæta Svíþjóð. 32-liða úrslitin á HM 28. júní, kl. 19:00: Suður-Afríka - Kanada 29. júní, kl. 17:00: Brasilía - Japan 29. júní, kl. 20:30: Þýskaland - Paragvæ 30. júní, 01:00: Holland - Marokkó 30. júní, kl. 17:00: Fílabeinsströndin - Noregur 30. júní, kl. 21:00: Frakkland - Svíþjóð 1. júlí, kl. 01:00: Mexíkó - Ekvador 1. júlí, kl. 16:00: England - Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 1. júlí, kl. 20:00: Belgía - Senegal 2. júlí, kl. 00:00: Bandaríkin - Bosnía 2. júlí, kl. 19:00: Spánn - Austurríki 2. júlí, kl. 23:00: Portúgal - Króatía 3. júlí, kl. 03:00: Sviss - Alsír 3. júlí, kl. 18:00: Ástralía - Egyptaland 3. júlí, kl. 22:00: Argentína - Grænhöfðaeyjar 4. júlí, kl. 01:30: Kólumbía - Gana Sem fyrr sagði hefjast 32-liða úrslitin með leik Kanada og Suður-Afríku í kvöld. Þeim lýkur á föstudaginn kemur. Sextán liða úrslitin hefjast með tveimur leikjum á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí.
28. júní, kl. 19:00: Suður-Afríka - Kanada 29. júní, kl. 17:00: Brasilía - Japan 29. júní, kl. 20:30: Þýskaland - Paragvæ 30. júní, 01:00: Holland - Marokkó 30. júní, kl. 17:00: Fílabeinsströndin - Noregur 30. júní, kl. 21:00: Frakkland - Svíþjóð 1. júlí, kl. 01:00: Mexíkó - Ekvador 1. júlí, kl. 16:00: England - Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 1. júlí, kl. 20:00: Belgía - Senegal 2. júlí, kl. 00:00: Bandaríkin - Bosnía 2. júlí, kl. 19:00: Spánn - Austurríki 2. júlí, kl. 23:00: Portúgal - Króatía 3. júlí, kl. 03:00: Sviss - Alsír 3. júlí, kl. 18:00: Ástralía - Egyptaland 3. júlí, kl. 22:00: Argentína - Grænhöfðaeyjar 4. júlí, kl. 01:30: Kólumbía - Gana
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira