Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2026 22:00 Marcelo Bielsa er hættur með úrúgvæska landsliðið eftir þriggja ára starf. getty/Manuel Velasquez Marcelo Bielsa kveðst bera ábyrgð á því að Úrúgvæ komst ekki upp úr riðlakeppninni á HM. Hann er hættur með úrúgvæska landsliðið og kveðst ekki hafa skilið neitt eftir sig fyrir fótboltann þar í landi.
Eftir 1-0 tap fyrir Spáni í gær var ljóst að Úrúgvæ kæmist ekki í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins. Vonbrigðin eru mikil fyrir lið sem er í 16. sæti styrkleikalista FIFA en Úrúgvæ vann ekki leik á HM að þessu sinni. Andrúmsloftið í herbúðum úrúgvæska liðsins hefur ekki verið gott en Bielsa lenti upp á kant við nokkra leikmenn þess. „Ég hef ekki skilið neitt eftir fyrir úrúgvæskan fótbolta,“ sagði hinn sjötugi Bielsa eftir tapið fyrir Spáni í nótt. „Þjálfari sem hefur verið í þrjú ár og ekki náð úrslitum getur ekki sagst hafa skilað neinu framlagi. Fjórða sætið í undankeppninni er einkis virði og heldur ekki 3. sætið í Suður-Ameríkukeppninni. Það er engin þörf á að skilgreina þessa frammistöðu á HM. Tími minn hér segir ekki neitt.“ Tók tapið á sig Úrúgvæ gerði jafntefli við Sádi-Arabíu og Grænhöfðaeyjar í fyrstu tveimur leikjum sínum í H-riðli og þurfti því að ná í stig gegn Evrópumeisturum Spánar til að eiga möguleika á að komast áfram. Úrúgvæum varð ekki kápan úr því klæðinu og hafa lokið leik á HM. „Við hefðum getað verið með sjö stig en erum bara með tvö. Það er vegna þjálfuninnar minnar. Mitt hlutverk var að þjálfa hóp leikmanna en mér tókst ekki að breyta þeim í sterka heild. Ef þið viljið útskýringar - sem ég held að þið viljið ekki - myndi ég segja að af þeim sjö stigum sem við áttum skilið fengum við tvö,“ sagði Bielsa. Tók Valverde snemma af velli „Ég er ábyrgur fyrir því sem Úrúgvæ gerði á þessu móti. Spurningar ykkar eru ekki til þess að fá svör heldur að ráðast á mig. Ég ber ábyrgð á öllum vonbrigðunum vegna frammistöðu minnar. En ef ég ætti að greina það sem ég gerði verð ég að taka mistökin inn í dæmið. [Fernando] Muslera var sá sem vildi koma út af og ég tók [Federico] Valverde af velli því ég vildi styrkja sóknina.“ Muslera var hættur í landsliðinu en Bielsa fékk hann til að snúa aftur fyrir HM. Markvörðurinn reyndi átti afleita leiki á mótinu og gerði meðal annars slæm mistök í eina marki viðureignarinnar gegn Spáni. Hann fór af velli í hálfleik í leiknum í nótt en hann óskaði sjálfur eftir því. Þá var samband Bielsas og Valverdes, fyrirliða og skærustu stjörnu úrúgvæska liðsins, stirt. Valverde og fleiri leikmenn Úrúgvæs óskuðu eftir því að Bielsa myndi breyta nálgun sinni fyrir leikinn gegn Spáni en þjálfarinn var ekki á þeim buxunum. Hann tók svo Valverde af velli í upphafi seinni hálfleiks í nótt sem kom mörgum á óvart.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Sjá meira