Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar 26. júní 2026 13:32 Það er fagnaðarefni að loksins hafi verið gripið til skýrra aðgerða varðandi notkun einkasíma í grunnskólum. Ákvörðunin er rétt. Hún hefði hins vegar mátt koma fyrr og vera hluti af stærri heild. Umræðan undanfarna daga vekur þó upp stærri spurningu: Af hverju virðist skólinn alltaf verða sá vettvangur sem á að leysa samfélagsleg vandamál sem eiga upptök sín annars staðar? Við höfum um árabil fylgst með áhrifum samfélagsmiðla og snjalltækja á börn og ungmenni. Við höfum séð frímínútur breytast, samskipti færast yfir á skjáinn og samkeppni um athygli barna harðna. Við höfum séð samfélagsmiðla sem byggja á reikniritum sem eru hönnuð til að halda notendum eins lengi og hægt er innan kerfanna hafa áhrif á einbeitingu, lestur, sjálfsmynd og líðan. Það er því fullkomlega eðlilegt að takmarka notkun einkasíma á skólatíma. En er það nóg? Vandinn var aldrei fyrst og fremst skólans Stærsti hluti vandans á sér stað eftir að skóladegi lýkur. Hann á sér stað á heimilum landsins, á kvöldin, um helgar og á samfélagsmiðlum sem hafa haft meiri áhrif á daglegt líf barna en flest okkar hefðu getað ímyndað sér fyrir áratug. Samt virðist skólinn aftur og aftur verða sá staður sem á að taka til eftir samfélagið. Ef hreyfing barna minnkar er horft til skólanna. Ef matarvenjur versna er horft til skólanna. Ef geðheilsa barna og ungmenna versnar er horft til skólanna. Og nú þegar áhyggjur af áhrifum samfélagsmiðla og snjalltækja hafa aukist er lausnin enn á ný sótt inn í skólastofuna. Skólarnir eiga að vera hluti af lausninni. En þeir geta ekki borið ábyrgðina einir. Við þurfum að sjá meiri heiðarleika hjá okkur fullorðna fólkinu Börnin okkar læra ekki aðeins af því sem við segjum. Þau læra af því sem við gerum. Flest okkar þekkja það hvernig síminn dregur athyglina frá samtölum, samverustundum og jafnvel eigin börnum. Það er erfitt að ætlast til þess að börnin standist það sem við eigum sjálf oft erfitt með. Ákvörðunin um símafrí er því rétt, en hún vekur líka spurningar um hvort við séum að takast á við rót vandans eða aðeins birtingarmynd hans. Umræðan þarf að ganga lengra Við þurfum að taka umræðu um hærri aldursmörk á samfélagsmiðlum og raunverulega aldursstaðfestingu. Við þurfum að leggja ábyrgð á þau fyrirtæki sem beita ávanabindandi aðferðum til að hagnast á athygli barna. Við þurfum líka að sjá aukna fræðslu um hvernig reiknirit virka, hvernig athyglishagkerfið mótar hegðun okkar og hvernig við getum öll tekið upplýstari ákvarðanir í stafrænum heimi. Því tækin sjálf eru ekki kjarni vandans heldur hvernig við nýtum tæknina. Eða frekar hvernig við neytum hennar. Þar liggur kjarni vandans. Hvort við neytum eða nýtum. Hlutverk skólans er að undirbúa börnin fyrir framtíðina. Það felur í sér að kenna þeim að lesa, skrifa og reikna. Það felur í sér að efla gagnrýna hugsun og hjálpa þeim að verða upplýstir borgarar. Í nútíma samfélagi felur það einnig í sér að kenna þeim að skilja tæknina, nýta hana af ábyrgð og verða fulltyngd í þeim verkfærum sem munu móta atvinnulíf og samfélag næstu áratuga. Þar getum við staðið með skólunum og stutt þá með því að veita þeim þau tól og tækni sem gerir kennurum kleift að uppfylla þessa nýju vídd í skólastarfinu.Það er ábyrgð okkar allra Aðeins með því að taka höndum saman getum við alið upp kynslóð sem er ekki aðeins neytendur tækninnar. Aðeins þannig getum við alið upp kynslóð sem skilur hana, getur beitt henni af ábyrgð og nýtt hana til að skapa, læra og taka þátt í samfélaginu. Símafrí er því rétt skref. En það er hænuskref. Ef við ætlum að vernda börnin okkar verðum við að hætta að líta svo á að það sé skólans að laga allt og fara að taka ábyrgð á því að við erum hluti af lausninni. Ábyrgðin á því hvernig börn alast upp í stafrænum heimi hvílir nefnilega ekki aðeins á skólunum. Hún hvílir á okkur öllum. Höfundur er frumkvöðull og verðandi þriggja barna móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun