Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Kjartan Kjartansson skrifar 25. júní 2026 08:11 Tist er úthverfi Árósa á Jótlandi. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Tvítugur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka bíl sínum á miklum hraða á íbúðarhús nærri Árósum með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri lést. Áreksturinn varð eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja lögreglu.
Slysið átti sér stað í bænum Tilst, úthverfi Árósa, skömmu fyrir miðnætti að staðartíma á þriðjudagskvöld. Ökumaður fólksbíls ók þá bíl sínum eftir íbúðargötu á um 109 kílómetra hraða á klukkustund, ríflega tvöföldum hámarkshraða. Bifreiðin hafnaði á húsi með þeim afleiðingum að 64 ára kona sem bjó þar lést. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og er ákærður fyrir mannráp af gáleysi, að sögn danska ríkisútvarpsins. Hann er jafnframt sagður góðkunningi lögreglu. Peter Svith Pulsen, lögreglustjórinn á Austur-Jótlandi, segir að skömmu fyrir slysið hafi lögreglu borist tilkynning um kappakstur á bílastæði í Tilst. Ökumaðurinn sem var handtekinn hafi stundað mesta ofsaaksturinn þar. „Þess vegna reyndum við að ná tali af þeim og þeir ákváðu þá að aka burt á miklum hraða. Þess vegna reyndum við stuttlega að veita þeim eftirför,“ segir Poulsen en auk ökumannsins var annar tvítugur karlmaður og tveir nítján ára gamlir piltar í bílnum. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur málið til rannsóknar. Hún er kölluð til þegar afskipti lögreglu leiða til mannsláts. Ökumaðurinn hefur lýst yfir sakleysi sínu en hann situr nú í gæsluvarðhaldi.
Danmörk Erlend sakamál Bílar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira