Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Andri Broddason skrifar 24. júní 2026 14:02 Edda Dögg Sindradóttir er leikmaður ÍBV og spilaði á mánudaginn gegn stóri frænku sinni Elísu Viðarsdóttur. Anton/Vísir Bestu mörkin ræddu í gær um Eddu Dögg Sindradóttur leikmann ÍBV en hún er aðeins sextán ára. Hún spilaði síðasta mánudag gegn Breiðablik en þar spilar Elísa Viðarsdóttir sem er stóra frænka Eddu. Átján ára aldursmunur er milli þeirra.
Frænkurnar Edda Dögg Sindradóttir og Elísa Viðarsdóttir voru teknar í viðtal eftir að Breiðablik vann ÍBV 3-0. Edda er bróðurdóttir Elísu og segir að það sé heiður að fá að mæta litlu frænku sinni. „Að spila á móti bróðurdóttur sinni er eitthvað sem mig hefði aldrei grunað þegar ég byrjaði að æfa fótbolta fimm ára gömul. En það er svo frábært að fá að sjá hana taka við keflinu og fá að fylgjast með henni vaxa og dafna í þessu frábæra ÍBV-liði.“ Þegar Edda Dögg er spurð um aldur Elísu segir hún að frænka sín sé orðin smá gömul en bætir fljótt við að hún standi sig vel. „Hún hefur verið fyrirmyndin mín mjög lengi og það er gaman að mætast á vellinum.“ Elísa segir að það sé gaman að sjá Eddu Dögg loksins spila með meistaraflokki og að hún hafi fylgst með henni lengi. „Ég er svo ótrúlega stolt af henni, hún er svo dugleg og vinnusöm. Það fer kannski ekki alltaf mikið fyrir henni inni á vellinum en hún skilar alltaf sínu. Ef hún heldur þessu áfram þá er ég rosalega spennt fyrir framtíðinni.“ Fjölskylda stelpnanna var að horfa á leikinn en hún er frá Eyjum og styður ÍBV. Þrátt fyrir það hvetur fjölskyldan Elísu þó að hún spili fyrir annað lið. Yngri leikmenn fá tækifæri og leikmenn spila lengur Það eru átján ár milli Elísu og Eddu og nefnir Helena Ólafsdóttir í Bestu mörkunum að það sé eitthvað sérstaklega íslenskt við það að spila á móti bróður dóttur sinni. Mist Rúnarsdóttir fagnar því að ferill leikmanna sé að lengjast. „Við hefðum ekkert endilega verið að sjá þetta fyrir tíu árum. Að frænkur séu að mætast með átján ár á milli er stórkostlegt en það er ekki lengur sjokk að það séu átján ár milli leikmanna lengur.“ Margrét Lára Viðarsdóttir er systir Elísu og einnig frænka Eddu Daggar. Þetta er því mikil íþróttafjölskylda en Sindri, pabbi Eddu Daggar, og Bjarni Geir Viðarssynir spiluðu einnig fótbolta. „Við erum mikið íþróttafólk í fjölskyldunni og gaman þegar maður sér ungviði taka við keflinu. Edda og fleiri hafa haft frábærar fyrirmyndir í Elísu og fleiri Eyjastelpum sem hafa komist inn í landsliðið,“ segir Margrét Lára og fagnar því að yngri leikmenn taki við keflinu af þeim eldri. Stelpurnar hrósuðu Jóni Ólafi Daníelssyni, þjálfara ÍBV, fyrir að vera duglegur að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Mikið er um unga leikmenn sem fá að spila hjá honum og einnig í öðrum liðum sem er frábær þróun fyrir deildina. Umræðuna má sjá í heild hér fyrir neðan: Klippa: Bestu mörkin: Frænkur spila gegn hvor annarri
Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira