Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2026 08:59 Liv Stidsing Reher-Langberg, fornleifafræðingur frá Moesgaard-safninu, heldur á kljástein sem notaður var við vefnað og fannst í uppgreftrinum nærri Árósum. AP/James Brooks Minjar eftir umfangsmikla vefnaðarframleiðslu frá víkingaöld hafa fundist í uppgreftri utan við Árósa í Danmörku. Fornleifafræðingur segir fundinn sýna að víkingar hafi verið meira en ósiðmenntaðir rustar sem fóru ruplandi og rænandi um Evrópu.
Snældur, kljásteinar og svæði til þess að vinna hör er á meðal þess sem fornleifafræðingar frá Moesgaard-safninu hafa fundið á um það bil 100.000 fermetra reit í Søften, tíu kílómetra norður af Árósum á Jótlandi. Talið er að minjarnar séu frá seinni hluta járnaldar og snemma á víkingaöld, um það bil frá 600 til 950, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Við uppgröftin komu einnig í ljós um áttatíu hálfniðurgrafnir kofar sem eru taldir hafa verið notaðir sem vinnustofur og bústaðir fyrir menn. Auk vinnusvæðisins fundu fornleifafræðingar stakt íbúðarhús sem þeim þykir benda til að valdamikill maður sem stýrði efni og framleiðslu hafi haft umsjón með starfseminni. Fornleifafræðingur vinnur að uppgreftri í Søften. Þar hafa einnig fundist silfurpeningar og perlur frá tímum víkinganna.AP/James Brooks Árósar voru miðstöð alþjóðlegra viðskipta á víkingaöld. Kasper Andersen, sagnfræðingur frá Moesgaard-safninu, segir að vörur og hráefni hafi líklega verið flutt til borgarinnar frá sveitum og þorpum eins og Søften og síðan seld þaðan. „Þegar þú ert með framleiðslustað af þessari stærðargráðu getur það ekki bara verið til heimabrúks. Það verður aðeins skilið sem hluti af stærra neti, af mun stærri alþjóðlegri mynd,“ segir Andersen. Þá segir hann að uppgötvunin í Søften sýnir að víkingarnir, sem herjuðu á Evrópu, hafi ekki bara verið einfaldir og ósiðmenntaðir villimenn. „Til þess að koma upp stað eins og Søften þarf mjög vel skipulagt samfélag með aðfangakeðju og þú þarft líka markað fyrir framleiðsluna. Vefnaðarvörurnar frá Søften fóru á markað sem var mun stærri en bara nærsvæðin,“ segir Andersen.
Danmörk Fornminjar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira