Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús

Árni Gísli Magnússon skrifar
Leikmenn Þór/KA geta fagnað fyrsta sigrinum í Bestu deildinni á tímabilinu.
Leikmenn Þór/KA geta fagnað fyrsta sigrinum í Bestu deildinni á tímabilinu. Guðmundur/Vísir

Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri í níundu umferð deildarinnar. Heimakonur skoruðu tvö góð mörk í fyrri hálfleik og sigldu öruggum 2-0 sigri heim og lyfta sér þar með úr botnsætinu og upp fyrir Fram í töflunni.

Fyrsta alvöru færi var Þróttara og kom eftir um sex mínútna leik en Jelena Tinna Kujundzic skallaði boltann framhjá alein inn á markteig úr algjöru dauðafæri.

Þór/KA komst í forystu á 17. mínútu með frábæru marki frá Maríu Dögg Jóhannsdóttur. Boltinn barst til hennar eftir skot frá Elísu Bríeti í varnarmann og lét María vaða í fyrsta á lofti og boltinn sveif fallega yfir markmanninn og í fjærhornið.

Amalía Árnadóttir tvöfaldaði forystu heimakvenna eftir 25 mínútna leik. Erin Flurey vann boltann af Jelenu Tinnu í öftustu línu og keyrðu inn á teig og lagði boltann fyrir Amalíu sem skoraði.

Þór/KA var sterkari aðilinn í hálfleiknum og Þróttarar náði litlum takti í sitt spil og færin af skornum skammti.

Þór/KA með tveggja marka forystu í hálfleik.

Síðari hálfleikur var ekki jafn tíðindamikill og sá fyrri og var lítið um opin marktæki framan af og var það ekki fyrr en undir lok leiks sem Þróttarar fóru að banka almennilega á dyr heimakvenna. Mist Funadóttir átti frábært skot frá vinstri þegar hún kom inn á völlinn og lét vaða á markið með hægri fæti en boltinn í samskeytin fjær.

Þór/KA sigldi sigrinum að lokum örugglega heim og þrjú kærkomin stig og fyrsti sigurinn loksins orðinn að veruleika.

Atvik leiksins

Fyrsta mark leiksins sem María Dögg Jóhannesdóttir skoraði en þetta er fyrsta mark hennar fyrir Þór/KA og það kom úr efstu hillu. Eftir skot Elísar Bríetar datt boltinn fyrir Maríu sem hikaði hvergi og lét vaða í fyrsta á lofti og boltinn yfir Mollee í markinu og söng í fjærhorninu.

Stjörnur og skúrkar

Ég ætla byrja á að nefna Hildi Önnu Birgisdóttur sem átti algjörlega frábæran leik á miðjunni. Hún er á nítjánda ári og hefur verið að fá meiri og meiri spilatíma sem er að skila sér. Hljóp og barðist eins og ljón allan leikinn og skilaði bolta vel frá sér ásamt því að taka öll föst leikatriði liðsins. Kom inn í hlutverk Karenar Maríu Sigurgeirsdóttur sem var tæp vegna meiðsla og leysti það hlutverk frábærlega.

Önnur ung stelpa, Karen Hulda Hrafnsdóttir sem er á sautjánda ári, spilaði frábærlega með Örnu Sif í hjarta varnarinnar og er það frábær skóli fyrir hana að spila með Örnu. Angela Mary Helgadóttir og María Dögg Jóhannesdóttir voru í bakvarðarstöðunum og spiluðu einnig vel sem hluti af varnarlínunni og María skorar auðvitað frábært mark í þokkabót.

Sóknarlega var Hulda Ósk Jónsdóttir skæðust og átti virkilega góðan leik.

Allt Þróttarliðið var í raun ólíkt sjálfu sér og engin sem stóð upp úr eða átti verri leik en önnur.

Dómarinn

Vel dæmdur leikur hjá Ásmundi Þór Sveinssyni og fá vafaatriði.

Stemning og umgjörð

171 áhorfandi lét sjá sig og létu bara ágætlega heyra í sér en auðvitað vill maður sjá betri mætingu.

Hamborgarasalan á sínum stað á pallinum í Hamri og ís og andslitsmálning í boði fyrir krakkana. Allt upp á tíu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira